Ég nota Wordpress - og ég nota það mikið. Til að mynda á Sævar.is, Gítargrip.is (sem opnar nota bene sumarið 2008), Gallía - Félag frönskunema og ferðalangar.net. Wordpress er einstaklega þægilegt og einfalt í notkun, bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Með því má gera einfalda hluti eins og að koma sér upp bloggsíðu, eða nota það sem grunn fyrir stærri vefi. Wordpress hefur verið að færast frá því að vera lítið og sætt bloggkerfi yfir í að vera nokkuð meðfærilegt sem CMS kerfi fyrir litla eða meðalstóra vefi. Það er líka einstaklega þægilegt að búa til viðbætur eða plugin fyrir Wordpress.

K2 er ansi öflug viðbót ofan á Wordpress, og knýr meðal annars útlitið á Ferðalöngum og Sævar.is. Það bætir við alls konar AJAX möguleikum og skemmtilegheitum.

Wordpress + K2 á íslensku

Það eru til þýðingar á íslensku fyrir Wordpress bæði hér og þar. K2 er hins vegar ekki til á íslensku eftir því sem ég best veit. Ég ætla því að reyna að eyða smá tíma í að þýða það. Ég er nú þegar búinn að þýða um 31% af textunum, sem eru að mestu á framendanum á kerfinu:

Wordpress viðbætur (plugins)
Ég hef gert slatta af viðbótum við Wordpress. Snilldin við það er að það er hægt að sérsmíða alls konar hluti inn í Wordpress án þess að hafa áhrif á kjarnann í uppsetningunni. Það er því auðvelt að uppfæra grunnkerfi Wordpress án þess að það hafi áhrif á breytingarnar sem maður gerir. Ég hef gert viðbætur á vef Gallíu og svo fyrir Gítargrip.is (reyndar er öll virkni gítargrip.is sem hægt er að nefna í gegnum viðbætur), en aldrei hef ég gert viðbæturnar mínar opinberar. Um daginn langaði mig að bæta við svona “Senda á Facebook” link á bloggfærslurnar mínar, svo ég ákvað að skrifa viðbót. Ég vildi líka gera það opinberlega og í gegnum Wordpress Extend. Svo hér er afraksturinn: