Vinna vinna og tónleikar

Nú er maður lítið búinn að blogga hér undanfarið, það er búið að vera nóg að gera við að flytja á Selfoss og vinna í TRS. Svo er maður alltaf eitthvað að vesenast á kvöldin svo ég er búinn að finna það út að ég hef eiginlega ekki sofið almennilegan svefn í svona 3 vikur… Það spilar reyndar inn í að við höfum haft kattarkvik-yndið inni hjá okkur á nóttunni, og það þarf auðvitað alltaf að fíflast og leika sér um leið og við förum að sofa!
Annars var ég að vinna fyrir Exton á laugardag, setja upp svið fyrir Roger Waters kallinn. Það var svona dæmigert puð en ég áttaði mig líka á því að ég hef varla hreyft mig svona mikið síðan bara ég veit ekki hvenær. Maður verður að fara að hreyfa sig eitthvað. Svo eru tónleikarnir í kvöld, og vinna við niðurrif strax á eftir og fram á nótt. Maður verður helvíti ónýtur í fyrramálið í vinnunni held ég.
Annars var ég að renna yfir VöllaBlogg, þar sem hann talar um að naga neglur. Ég er samt svo svakalegur í þeirri íþrótt að þegar neglurnar eru búnar byrja ég yfirleitt á húðinni í kring líka, og oft endar það með að það kemur sár sem blæðir úr og ég bölva sjálfum mér í sand og ösku fyrir að vera svona vitlaus. Nokkrum dögum síðar er ég yfirleitt búinn að naga puttann niður aftur. Ætli maður geti ekki bara látið dáleiða sig eða eitthvað til að losna við þennan ánskota?

5 Responses to “Vinna vinna og tónleikar”


  1. 1 Völundur

    Úff, er köturinn að fíflast?

    haha, mér varð e einmitt mjög hugsað til þín þegar ég var að bölva þessu með að naga á mér puttana… - ég hélt samt að þý byrjaðir ekkert á nöglunum, heldur færir beint í puttana, og skrældir þá bara.

  2. 2 ofjord

    Já, það er mun effektífara, rétt er það. Ég held ég fái mér bara kartöfluskrælara í verkið.

  3. 3 Völundur

    ugghh, ekki segja þetta … hahaha

    Ef þú ætlar að fá þér eitthvað tæki sem gerir þetta, hugsaðu þá til framtíðar og kauptu eitthvað sem styður TCP / IP, þá geturðu mögulega gert þetta í fjarvinnu.

  4. 4 ofjord

    Held ég fari frekar í serial bara

  5. 5 Karna -

    Hey, litla kvik-yndið okkar… hvað er að frétta af blessuninni?

    Farðu vel með puttana, eftir allt áttu bara 10 og þú verður að nýta þá út allt lífið, það má mestalagi fara einn á áratug - því við verðum að gera ráð fyrir langlífi!

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-spam image