heim úr útskriftarpartýinu hans Bjössa. Þar kenndi ýmissa grasa, sá t.d. Leó í fyrsta sinn síðan í 10. bekk held ég. Hallur Karl kenndi skemmtilega handahreyfingu sem Brasilíubúar þekkja sem táknið fyrir homma. Mjög athyglisvert, ekki síst vegna þess hve flókin hreyfingin er, svona miðað við flest svona merki.
Svo þegar ég kom heim áðan mætti mér búslóð í stigaganginum. Það virðist sem fólkið í íbúðinni á móti sé að flytja. Það er alveg merkilegt með svona búslóðir, það er alveg sama með hvaða smekk þú hefur, hvort það er Kjarval eða dagatal uppi á vegg, búslóðir líta allar eins út komnar í pappakassa utan af Wesson matarolíu.
Annars lenti ég í miður skemmtilegu atviki í dag. Það var náttúrulega hörmulegt veður í dag. Haha, náttúrulega hörmulegt. En já, ég keyrði sem sagt Auði í vinnuna í Borgartúni. Það tók ca. 30 mínútur, tekur venjulega svona 15 mínútur í föstudagsumferð um fimmleytið. Eftir það þurfti ég að fara í ríkið og apótek. Eini staðurinn að mér vitandi sem býður upp á nákvæmlega þessar tvær þjónustur undir einu þaki er Eiðistorg. Svo ég fór þangað. Þegar ég ætlaði að borga í ríkinu kom upp ,,Netvilla”, veit ekki nákvæmlega hvað það þýðir, en eini kosturinn sem ég hafði þá var að fara í hraðbankann. Ég var nýbúinn að leggja inn á kortið svo það kom mér á óvart að nú var ekki innistæða, sama sagði gjaldkerinn í Íslandsbanka á Eiðistorgi. Þá var eina leiðin að hringja í þjónustuver Landsbankans og athuga hvað hefði gerst. Og viti menn, hafði ekki fjandans kerfið tekið færsluna út af kortinu mínu án þess að staðfesta það við kassann í búðinni svo ég þurfti að borga AFTUR (takk, VISA). Sjálfsagt verður þetta bakfært í kerfinu innan 9 daga en helvíti óskemmtilegt samt. Verslunarstjórinn lofaði samt að endurgreiða mér ef þetta yrði ekki bakfært. Þannig að eitthvað sem átti að vera stuttur skreppitúr varð að 1 og ½ klst. veseni.
Á morgun er ferðinni heitið í skála nálægt Krýsuvík. Þar vantar hurð og tvo glugga, svo það verður athyglisvert að sjá hvernig gengur að gista þar.
0 Responses to “Var að koma”
Leave a Reply