Ég rakst á tvær fréttir á Vísi í gær. Önnur var um vörubílstjórann sem réðist á lögregluþjón við Kirkjusand í vor, hin um fíkniefnafund á höfuðborgarsvæðinu. Mig langar aðeins að benda á hvernig fréttirnar eru settar fram á forsíðu Vísis:
Lögguhrotti fær hálfs árs fangelsisdóm
Ókei, ég er kannski svona einfaldur, en mér finnst þessi fyrirsögn svona frekar í neikvæðari kantinum. Orðið lögguhrotti er mjög neikvætt og hlutdrægt, og mætti halda að þarna væri á ferð maður sem stundaði það að taka varnarlausa lögreglumenn hálstaki þegar hann er ekki að stoppa umferð á aðalumferðaræðum borgarinnar. Ég ætla ekki að fara að verja viðbrögð hans þegar lögreglan gerði vörubifreið hans upptæka, en ég tel líka að lögreglan sé ekki alsaklaus í stóra vörubílstjóramálinu. Viðbrögð lögreglunnar voru oft á tíðum óþarflega harkaleg og hefði mátt forðast ofbeldi í öllum þeim tilvikum sem það gerðist, t.d. á Kirkjusandi og við Rauðavatn, ef lögreglan hefði brugðist öðruvísi við. Það voru ekki hryðjuverkasamtök að sprengja upp vegina okkar, þetta voru venjulegir, íslenskir fjölskyldufeður að reyna að benda á að hátt olíuverð í landinu kemur illa niður á mörgum sem hafa lifibrauð sitt af því að keyra. Jú, stundum gengu þeir of langt, en ég skil það líka vel. Viðbrögðin sem þeir fengu frá stjórnvöldum voru ekkert til að hrópa húrra fyrir. Áttu þeir bara að gefast upp og vera þægir eins og Íslendingar hafa gert alla tíð, eða áttu þeir að halda áfram að berjast fyrir því sem þeir töldu vera réttlæti?
Jæja, nóg um þetta. Næsta frétt:
Kannabisskógar í Kópavogi og Breiðholti
“Kannabisskógar”? Ertu ekki að grínast? Eru tuttugu plöntur í íbúð í Breiðholti og fjörutíu plöntur í Kópavogi allt í einu orðið skógur? Orðavalið er villandi og fyrst þegar ég las fyrirsögnina bjóst ég hálfpartinn við að einhver hefði gengið fram á 3ja hektara kannabisskóg í Heiðmörk! Ég mun aldrei tala jákvætt um fíkniefni, en reynum samt bara að tala um hlutina eins og þeir eru:
Skógur: “Vistkerfi, minnst 0,5 hektari að flatarmáli, þar sem tré að minnsta kosti 2 m á hæð eru ríkjandi og þekja að minnsta kosti 10% lands (Þröstur Eysteinsson, Skógrækt ríkisins )”
sko, ég hélt að lögguhrotti væri hrottaleg lögga, ekki gaur sem hrottaðist á löggum :S
Hm já, góður punktur. Væri það samt ekki hrottalögga?