… ég kem mér ekki í lærdómsgírinn þessa dagana. Byrjaði vel í síðustu viku, tók svo fyrsta prófið 3. maí. Það gekk bara vel, einkunnin er komin í hús. Svo var próf 5. maí en það var n.k. áfangapróf í því námskeiði þ.a. efnið var ekki mjög mikið. Enda fór ég út þegar helmingur af próftíma var liðinn. En nú er komið að martröðinni, Rafsegulfræði á mánudaginn 8. maí. Ég hef ekki hugmynd um hvernig það fer, verð bara að vona það besta.
Annars er ég líka að vinna að vef með honum ee.is, við fórum á fund með kúnnanum í morgun, þá hafði ég sofið í ca. 2 tíma um nóttina eftir að hafa púllað ollnæter eins og maður segir í bransanum. En fundurinn fór betur en ég þorði að vona og kúnninn ánægður.
Nú sitjum við Auður hvort við sitt skrifborðið og hlustum á Klassísk Meistaraverk… Tumalína sturlast síðan reglulega þegar prentarinn prentar.
Jæja, ekkert meira að frétta í bili held ég, það er kannski best að maður fari að reikna gömul próf svo maður eigi einhvern séns í Segulinn.
Já, nú bara er diskurinn hættur að rúlla og sönglið í Sævari tekið við af Klassísku Meistaraverkunum… Kötturinn þarf óvenju mikla athygli núna, það er alveg hræðilegt að gelyma að gefa henni pilluna svona í mirði prófatrön. Hún búrrar og mjár og nuddar sér utan í allt í gríð og erg….
Jæja… Ritgerðin klárast víst því miður ekki af sjálfri sér…