Þá kemur hérna samantekt

á aulabröndurum sem sagðir hafa verið í sýningunni Blóðberg:

  • Hvað er rautt og ósýnilegt?
    —Enginn tómatur!
  • Af hverju var Gandhi alltaf í hvítu laki?
    —Svo hann gengi ekki um á typpinu!
  • Af hverju er Keila í Mjóddinni?
    —Út af öllum Fellunum!
  • Hvað er líkt með páfanum og jólatré?
    —Kúlurnar hanga bara til skrauts!
  • Af hverju dóu allir mammútarnir út?
    —Það voru engir pabbútar eftir!

Sem sagt alveg frábærir brandarar þarna á ferð sem hann Jón Lögga segir í sýningunni. Og hefur sagt nýjan í næstum hverri sýningu… Verst að ég man ekki alveg alla. Ég bíð samt spenntur eftir lokasýningunni á föstudaginn, því (a) það verður lokasýning og örugglega eitthvað sprell sem verður í gangi og (b) ég er laus við að vinna henni, sem aftur á móti leiðir til þess að þá alvaran virkilega við. Prófin byrja 10. des.

2 Responses to “Þá kemur hérna samantekt”


  1. 1 Daði

    Ég legg til að þú birtir fleiri svona aulabrandara, ómetanleg skemmtun!

  2. 2 Sævar

    Já kallaðu mig bara Jesú, ég get nefnilega breytt vatni í grín…
    (þessi var líka í Blóðbergi)

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-spam image