Tag Archive for 'sími'

Farsíma-farsi - taka 2

Enn hef ég ekkert heyrt frá Vodafone. Ég hef hins vegar frétt í gegnum kunningja vinnufélagans hjá Vodafone að vandamálið hafi verið lagað. Ég sendi því í dag bréf til Vodafone, að mestu leyti óbreytt úr blogginu frá því um daginn, þar sem ég lýsti yfir frati á svona framkomu! Hér er niðurlagið:

Nú hef ég svo sem ekkert sérstakt við það að athuga að Vodafone hafi endurselt símanúmerið mitt. Það voru greinilega hrein og klár mistök sem vonandi leiða til þess að verkferlar verða bættir í þessum málum í framtíðinni. Mér fannst hins vegar viðhorf starfsmanna til vandamála minna áhyggjuefni.

Stúlkan í þjónustuverinu hafði því miður ekki þekkingu til þess að hjálpa mér þrátt fyrir að vera öll af vilja gerð. Hennar uppástunga var að ég myndi hafa samband við Lettann ókunna með tilheyrandi veseni og vitleysu og koma honum í skilning um að hann þyrfti að skila númerinu. Að sjálfsögðu hefði hún átt að vísa máli mínu til einhvers með meiri þekkingu.

Það var frábært að hægt var að leysa vandann, en ég var ekki einu sinni látinn vita formlega að verið væri að vinna í málinu, heldur komu allar slíkar upplýsingar í gegnum fyrrnefndan kunningsskap. Mér fannst hálfpartinn eins og tæknimenn væru að reyna að sópa þessu undir teppið til þess að fela mistök.

Ég hef sem sagt ekki heyrt orð beint frá Vodafone, hvorki til þess að láta mig vita að menn væru að vinna í málinu, né til þess að biðja mig afsökunar á óþægindunum. Ég vona að þið bætið úr þessu í framtíðinni.

Ég læt ykkur vita ef ég heyri eitthvað…

Farsíma-farsi

Á mánudaginn lenti ég í einu fyndnasta atviki sem ég hef nokkurn tímann upplifað. Þannig var mál með vexti að um ellefu-leytið hringdi í mig maður sem tjáði mér að ég hefði verið að hringja í sig úr númeri sem lettneskur vinur hans ætti. Ég tjáði honum kurteislega að svo hefði ekki verið, enda þekkti ég hann ekki neitt (né Lettan vin hans) og ekki snert á símanum allan morguninn. Hann þrætti við mig um þetta í smá stund, enda sá hann númerið mitt sem “missed call”, en að lokum ákváðum við að vera sammála um að vera ósammála og slitum símtalinu. Stuttu eftir hádegi sama dag hringdi í mig maður af erlendu bergi brotinn. Hann bjóst greinilega ekki við að heyra mína hreinræktuðu og gullfallegu íslensku og varð orða vant. Ég afskrifaði þetta sem “vitlaust númer” og hélt áfram að vinna. Eftir á að hyggja var mjög líklegt að þessi maður hafi verið lettneskur…

Þegar þriðja símtalið barst stuttu síðar, greinilega frá útlendingi sem talaði annars sæmilega íslensku, var mér ekki farið að standa á sama. Ég spurði manninn hvert hann hefði verið að reyna að hringja. Hann tjáði mér að hann væri að hringja í lettneskan vin sinn sem væri með símanúmerið 690-6422. Nákvæmlega sama númer og ég á!

Nú var mig farið að gruna hvað væri í gangi. Ég fór á vef Vodafone og fletti upp símanúmerinu mínu. Merkilegt nokk, þar var númerið mitt skráð eins og ég væri í viðskiptum við Vodafone. Svona til að skýra málin aðeins þá fékk ég þetta símanúmer upphaflega þegar ég hóf viðskipti við Tal hf árið 2000. Það breyttist svo í OgVodafone og árið 2004 skipti ég yfir til Símans. Í fyrra, árið 2007, hætti ég í Frelsi hjá Símanum og fór í reikningsviðskipti. Þannig að það ætti að vera nokkuð ljóst hjá báðum þessum símafyrirtækjum að þetta númer er mitt!

Þannig að ég hringdi í þjónustuver Vodafone. Þar fékk ég þau skilaboð að þar sem númerið væri skráð í þeirra kerfi sem “óskráð frelsisnúmer”, þ.e. frelsisnúmer sem er ekki í símaskrá, þá væri ekkert hægt að gera fyrir mig. Ég þyrfti einfaldlega að hafa upp á þessum grunlausa Letta sem keypti sér frelsisnúmer úti í búð og biðja hann um að skila númerinu. Ég útskýrði að ég hefði nú haft þetta símanúmer til umráða í næstum átta ár og mér fyndist nú heldur hart að ég þyrfti að standa í svona veseni vegna þess að Vodafone seldi einhverjum úti í bæ númerið mitt. Starfsmaðurinn í þjónustuverinu tók fram að þrátt fyrir að hún hefði skilning á vandamáli mínu og tæki sögu mína mjög svo trúanlega, þá væri ekkert hægt að gera. Takk fyrir það, Voðafón!

Nú voru góð ráð dýr. Ég sá fram á a.m.k. tveggja vikna vesen og vitleysu þar sem ég þarf að biðja einhvern Letta um að koma með mér í símabúð að skrifa undir pappíra og hvaðeina. Völundur sá fyrir sér fyrirsagnirnar: “Sævar deildi tóli með ókunnum Letta í sólarhring”. En til allrar hamingju þekkir Andri vinnufélagi starfsmenn innan Vodafone, hann hringdi einhver símtöl, togaði í nokkra spotta og fékk loforð um að þessu yrði kippt í liðinn innan sólarhrings. Að sögn Vodafone tóku þeir “óvart” til sín kippu af farsímanúmerum og skráðu hjá sér sem frelsisnúmer, án þess að kanna fyrst hvort þau væru í notkun hjá öðrum símafélögum. Það hafa víst nokkrir farsímanotendur lent í þessu sama vandamáli í sumar.

Nú er kominn miðvikudagur og ég hef ekkert heyrt frá Vodafone né vinum Lettans. Grey Lettinn veit áreiðanlega ekki hvað hefur gerst því allt í einu er hann ekki lengur með virkt símanúmer! Furðulegast finnst mér þó að Vodafone veit upp á sig sökina, en hefur ekki einu sinni fyrir því að láta mig vita að þetta sé komið í lag. Ég hef því síður verið beðinn afsökunar á óþægindunum af hálfu Vodafone. Hvers konar starfshættir eru það?

Síminn minn í myndum

Ég ætla að fylgja trendsetternum Einari Elí, sem bloggaði um símann sinn í myndum í gær.

Við notum myndavélasíma þegar eitthvað gerist sem okkur finnst skemmtilegt eða merkilegt, og engin önnur myndavél er við höndina. Síminn geymir því gróft yfirlit yfir ákveðna “hápunkta” í lífi okkar sem okkur hefur langað að muna. Þess vegna gæti það sagt ýmislegt um okkur ef við leyfðum öðrum að kíkja á síma-myndirnar okkar. Hér eru mínar:

Völundur með Úkúlele

Völundur með Úkúlele. Þetta er fyrsta myndin sem ég tók á símann minn, nýkominn heim úr útskriftarferð í Bandaríkjunum.

Týpísk Exton mynd. Þarna vorum við að fara að hengja upp þetta risastóra, 5x7m sýningartjald. Ég tók myndina úr vinnulyftunni.

Týpísk Exton mynd. Þarna vorum við að fara að hengja upp þetta risastóra, 5x7m sýningartjald. Ég tók myndina úr vinnulyftunni.

Auður að syngja. Ég er ekki viss um að hún verði ánægð með þessa myndbirtingu!

Auður að syngja. Ég er ekki viss um að hún verði ánægð með þessa myndbirtingu!

Þetta er burnout keppni á Humarhátíð á Höfn 2007. Alveg stórfurðulega íþrótt sem erfitt er að horfa ekki á. Verst hvað lyktin er vond...

Þetta er burnout keppni á Humarhátíð á Höfn 2007. Alveg stórfurðulega íþrótt sem erfitt er að horfa ekki á. Verst hvað lyktin er vond...

Völundur grettir sig á Kaffitár. Ég man ekki tilefnið en mig grunar að það sé einhver þynnka í gangi...

Völundur grettir sig á Kaffitár. Ég man ekki tilefnið en mig grunar að það sé einhver þynnka í gangi...

Nonni Djamm, þegar hann var og hét.

Nonni Djamm, þegar hann var og hét.

Tónleikar Kaupþings á Laugardalsvelli sumarið 2007. Ég vann fyrir Exton að því að setja upp sviðið. Þarna er búið að reisa stoðirnar og menn eru byrjaðir að hífa þakið upp.

Tónleikar Kaupþings á Laugardalsvelli sumarið 2007. Ég vann fyrir Exton í því að setja upp sviðið. Þarna er búið að reisa stoðirnar og menn eru byrjaðir að hífa þakið upp.

Dæmigerð mynd úr vinnunni. Þarna er ég að vinna í netmálum fyrir einhvern viðskiptavina okkar.

Dæmigerð mynd úr vinnunni. Þarna er ég að vinna í netmálum fyrir einhvern viðskiptavina okkar.

Þarna var ég fastur í Ártúnsbrekkunni í einu vörubílstjórastoppinu.

Þarna var ég fastur í Ártúnsbrekkunni í einu vörubílstjórastoppinu.

Silhúetta úr vinnunni.

Silhúetta úr vinnunni. Óli og Örvar standa vaktina...