Tag Archive for 'nýtt bloggkerfi'

Enn nýtt bloggkerfi

Jæja, þá er ég enn búinn að skipta um bloggkerfi, kominn yfir í Wordpress. Mér finnst það mun þægilegra þar sem það er til meira af plugins fyrir það. Byrjaði til dæmis á því að setja upp anti-spam plugin á athugasemdakerfið. Það voru komnar ca. 30.000 athugasemdir frá einhverjum spamm-tölvum.

Svo ef þið viljið kommenta, sem ég hvet ykkur eindregið til að gera, þá þurfið þið nú að slá inn eitt orð sem lesið er af mynd til þess að sanna að þið séuð mennsk.

Nú ætla ég að halda áfram próflestri, en þar sem ég er yfirleitt aktívastur á blogginu í kringum prófin má búast við einhverju meiru frá mér áður en prófatörn lýkur…