Staðlað blogg

Já góðan daginn, þetta er ég hérna aftur. Hef orðið fyrir ákveðnum þrýstingi um að skrifa hérna svo ég prófa það. Annars er nú ástæðan fyrir því að ég hef ekkert skrifað sú að ég hef verið í fríi. Sko… fríi bara frá öllu saman. En jájá, auðvitað getur maður ekki verið í fríi frá netinu, þvílík fjarstæða… En málið er að til þess að skrifa eitthvað hér þarf ég að fara í Ugluna og velja Skrárnar mínar og blablabla svo ég hef ekki nennt þessu. En hér er ég allavega.

Hm. Nú þegar ég les yfir þessar síðustu línur finnst mér eins og ég sé að lesa síðust orð þunglyndissjúklings sem er um það bil að fara að kála sér. Það gengur ekki.

Ok, ég var sem sagt að lesa Kleifarvatn í jólafríinu. Þar er heilmikið talað um ástandið Austantjalds eftir seinna stríð eins og þeir sem hafa lesið bókina og/eða lesið einhverjar greinar um bókina undanfarið. Nú, svo í dag komst ég yfir merkilega bók sem heitir Rauða bókin: Leyniskýrslur SÍA. SÍA var Sósíalistafélag Íslendinga Austantjalds og alveg hrikalega leynilegt. Bókin inniheldur skýrslur frá námsmönnum austantjalds sem láku í Morgunblaðið á sínum tíma. Eh… Nú nenni ég eiginlega ekki að skrifa meira um þetta, en hver sem hefur áhuga má hringja í mig og vita meira. Ég er í símaskránni.

Núh, ég nenni eiginlega ekki að tala um allt sem gerðist síðan 20. des svo ég held ég kvabbi bara um þrettándann. Af hverju heitir þrettándinn þrettándinn? Jú ok, þetta er þrettándi dagur jóla, og þá fer síðasti jólasveinninn til byggða, en af hverju í fjandanum byrjum við þá að telja þegar þeir fara? Það er ekki eins og þetta sé eitthvað merkilegur dagur þannig séð, ekki einu sinni frídagur. Og þrettándi dagur jóla? Fyrir mér eru jólin búin 2. í jólum, þannig séð. Svo koma áramót sem eru kafli út af fyrir sig, ég meina, þau tengjast ekkert frelsaranum held ég? Það held ég að það þurfi ekki að hampa honum fyrir það líka.

Jæja, þá er ég búinn vera leiðinlegur, tilgangslaus, kvartgjarn og sýna andguðlega tilburði, allt þetta í einu bloggi! Nú má kommentunum heldur betur rigna… (eins og einhver lesi þetta rugl?)

0 Responses to “Staðlað blogg”


  1. No Comments

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-spam image