Síminn rokkar ójá

Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki alltaf verið mesti aðdáandi Símans, ég hef í raun oftar en ekki bölvað þessu bákni í sand og ösku. En í vikunni fékk ég svo æðislega þjónustu hjá þeim að það sprengdi huga minn!

Ég pantaði ADSL línu á þriðjudagsmorgun eftir verslunarmannahelgi og var talað um að þetta gæti tekið 3-5 virka daga. Allt í góðu með það, þetta var styttri afgreiðslufrestur en ég hef heyrt um á ADSL línum hjá símafyrirtækjunum. Í kvöld, fimmtudagskvöld ákvað ég að stilla routerinn svo hann væri tilbúinn að detta inn á netið um leið og Síminn kveikti á tengingunni. Og viti menn, þeir voru búnir að græja allt!

Sími, þú færð stórt klapp á bakið frá mér.

0 Responses to “Síminn rokkar ójá”


  1. No Comments

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-spam image