Síminn minn í myndum

Ég ætla að fylgja trendsetternum Einari Elí, sem bloggaði um símann sinn í myndum í gær.

Við notum myndavélasíma þegar eitthvað gerist sem okkur finnst skemmtilegt eða merkilegt, og engin önnur myndavél er við höndina. Síminn geymir því gróft yfirlit yfir ákveðna “hápunkta” í lífi okkar sem okkur hefur langað að muna. Þess vegna gæti það sagt ýmislegt um okkur ef við leyfðum öðrum að kíkja á síma-myndirnar okkar. Hér eru mínar:

Völundur með Úkúlele

Völundur með Úkúlele. Þetta er fyrsta myndin sem ég tók á símann minn, nýkominn heim úr útskriftarferð í Bandaríkjunum.

Týpísk Exton mynd. Þarna vorum við að fara að hengja upp þetta risastóra, 5x7m sýningartjald. Ég tók myndina úr vinnulyftunni.

Týpísk Exton mynd. Þarna vorum við að fara að hengja upp þetta risastóra, 5x7m sýningartjald. Ég tók myndina úr vinnulyftunni.

Auður að syngja. Ég er ekki viss um að hún verði ánægð með þessa myndbirtingu!

Auður að syngja. Ég er ekki viss um að hún verði ánægð með þessa myndbirtingu!

Þetta er burnout keppni á Humarhátíð á Höfn 2007. Alveg stórfurðulega íþrótt sem erfitt er að horfa ekki á. Verst hvað lyktin er vond...

Þetta er burnout keppni á Humarhátíð á Höfn 2007. Alveg stórfurðulega íþrótt sem erfitt er að horfa ekki á. Verst hvað lyktin er vond...

Völundur grettir sig á Kaffitár. Ég man ekki tilefnið en mig grunar að það sé einhver þynnka í gangi...

Völundur grettir sig á Kaffitár. Ég man ekki tilefnið en mig grunar að það sé einhver þynnka í gangi...

Nonni Djamm, þegar hann var og hét.

Nonni Djamm, þegar hann var og hét.

Tónleikar Kaupþings á Laugardalsvelli sumarið 2007. Ég vann fyrir Exton að því að setja upp sviðið. Þarna er búið að reisa stoðirnar og menn eru byrjaðir að hífa þakið upp.

Tónleikar Kaupþings á Laugardalsvelli sumarið 2007. Ég vann fyrir Exton í því að setja upp sviðið. Þarna er búið að reisa stoðirnar og menn eru byrjaðir að hífa þakið upp.

Dæmigerð mynd úr vinnunni. Þarna er ég að vinna í netmálum fyrir einhvern viðskiptavina okkar.

Dæmigerð mynd úr vinnunni. Þarna er ég að vinna í netmálum fyrir einhvern viðskiptavina okkar.

Þarna var ég fastur í Ártúnsbrekkunni í einu vörubílstjórastoppinu.

Þarna var ég fastur í Ártúnsbrekkunni í einu vörubílstjórastoppinu.

Silhúetta úr vinnunni.

Silhúetta úr vinnunni. Óli og Örvar standa vaktina...

5 Responses to “Síminn minn í myndum”


  1. 1 Völundur

    Mikið var ég feginn þegar ég sá að það er hægt að stækka myndirnar!!!

  2. 2 Sævar

    Já er það ekki? Þá sér maður betur smettið á þér … :)

  3. 3 Einar Elí

    Híhí - skemmtilegar myndir

  4. 4 Jón Örn

    nonni djamm hefur sko lifnað við aftur

  5. 5 Sævar

    Ég vissi það! Það var kominn tími til, fannst mér, og birti ég því myndina.

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-spam image