Samfélag+

Rúv+, Skjáreinn+, Stöð2+… Hvað er næst? Rúv++, Skjáreinn+24, Stöð2+365? Bráðum fara að myndast hópar í samfélaginu sem lifa klukkutíma á eftir öllum hinum. Þetta byrjar sakleysislega, það er sniðugt að geta horft á fréttirnar klukkutíma síðar ef maður kemur seint heim eða horft á uppáhaldsþáttinn sinn á Skjáreinn+ vegna þess að maður tafðist í umferð. Næst ferðu að treysta á þessa nýju leið til að horfa á sjónvarp og dagurinn er allt í einu orðinn klukkutíma lengri.

Þegar tækninni fleygir svo fram og afþreyingarmöguleikum fjölgar verðum við væntanlega komin með enn fleiri stöðvar; Stöð2++, Skjáreinn+24… Allt í einu ertu farinn að fylgjast með fréttum degi á eftir öllum öðrum, í partíum þarftu að hópa þig með þeim sem sitja í sömu súpunni svo umræðan um málefni “líðandi stundar” verði ekki stórundarleg. Fyrr en varir ertu búinn að tapa viku úr lífi þínu, horfir á Rúv+7 og átt erfitt með að skilja af hverju það er alltaf rigning þegar veðurfréttamaðurinn spáir sólskini.

Á endanum hlýtur svo að koma að því; stofnað verður félagið 365+ utanum rekstur fjölmiðlasamsteypu sem birtir ársgamalt efni fyrir ekta íslenska “frestara” (e. procrastinator). Þetta systurfélag 365 verður stærra með hverjum ársgömlum deginum og á endanum verður ákveðið að þurrka út heilt ár úr Íslandssögunni, enda allir hættir að lifa í nútímanum.

7 Responses to “Samfélag+”


  1. 1 baldur

    Ég er að bíða eftir rúv- svo ég geti horft á fréttirnar í beinni áður en þær gerast

  2. 2 Sævar Öfjörðae

    Haha, the plot thickens…
    Annars er ég að reyna að koma með lausn á helvítis stafasettsvandamálinu. S.s þegar einhver kommentar hérna þá kemur bara bull (fyrir utan þau augljósu tilvik þegar viðkomandi er í raun að bulla). Þetta er af því blogg kerfið vill endilega vera UTF8 en ég er að reyna að þröngva því til að vera latin1…

  3. 3 Völundur

    Já! - ertu búinn að blogga í­ marga daga maður?
    - kominn í áskrift.

  4. 4 Bjössi

    Mér finnst þetta bæði hryllileg tilhugsun og fyndin tilhugsun. Hugsanlega samt meira fyndin en hryllileg. Helst langar mig að sjá 365 bygginguna, nákvæmlega eins hús við hliðina á því­ gamla, þarsem sömu atburðirnir gerast klukkutí­ma síðar en í­ gamla tí­manum.

    Afhverju stendur annars að það séu 6 athugasemdir við þessa færslu þegar það eru bara 3?

  5. 5 Sævar Öfjörð

    Tjah, nú eru allavega 5…

  6. 6 Siggi

    Þetta er frábær pæling ! Ég sé fyrir mér enn hættulegri framtíð: Fréttir 7 fást ókeypis en svo þarftu alltaf að greiða meira og meira til að fá fréttir sem eru nær rauntíma … Það væri fyndið, svona er þetta nú þegar í fjármálageiranum, 30 mínútna gamlar fréttir eru ókeypis en svo þarftu að greiða til að færast nær rauntíma :)

  7. 7 Eva Kristí­n

    Hæhæ :) Ég var einmitt að lesa hérna þessa færslu um daginn og mér finnst þetta alveg frábær pæling :D Það er ótrúlegt hvað fólk finnur uppá til að græða á og ég held að sjónvarpið sé að stefna í einhverja furðulega átt. Ég hef aldrei getað valið um jafnmargar stöðvar og hérna úti…ekki nema 45. En takk fyrir skemmtilegt comment :) Örn ætlar einmitt að fá að blogga næst. Haltu áfram að blogga :)

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-spam image