QR kóðar eru víst það heitasta í Japan í dag, og eins og allir vita þá eru Japanir trendsetterar dauðans í öllu sem viðkemur tækni (já eða ekki tækni). Mér datt því í hug að prófa þetta QR dót og setti þetta upp á símann minn. Og viti menn, þetta er mjög sniðugt. Það er hægt að lesa þessa kóða með myndavélinni í símanum og greina skilaboðin sem eru kóðuð í myndina með sérstöku forriti (ég notaði UpCode). Svo fer það eftir því hvort skilaboðin eru texti, URL eða símanúmer hvernig síminn bregst við. Ef skilaboðin eru t.d. URL þá reynir síminn að fara beint á síðana sem slóðin bendir á. Hér fylgir mynd sem þið getið notað til að prófa, annars er auðvelt að búa til þessar myndir á qrcode.kaywa.com
Þetta er nokkuð gott.. Mér sýnist íslenskir stafir reyndar ekki virka í þessum fjára, en það kemur varla á óvart?
Já það var svossum viðbúið