Maður veit

að maður er ekki bloggtýpan þegar maður eyðir meiri tíma í að forrita vefinn þannig að hann t.d. hrynji ekki þegar kemur nýr mánuður án bloggs en maður bloggar…

Sko, fyrst kom mars, og þá datt síðan út því það var ekkert búið að blogga þá. Þannig að ég breytti síðunni svo hún gæti einfaldlega birt febrúar í mars þegar enginn mars var… eða þannig sko. Svo það var kannski kominn tími til að segja eitthvað.

Í dag er fyrsti apríl. Ég tel ekki þörf fyrir drastískar varúðarráðstafanir en verð þó var um mig. Gæti verið gaman að kíkja í ráðhúsið þó, klukkan 3. Gaman að kíkja á þessa tímavél, og spjalla við Fischer…

Svo er hér líka aprílgabb.

0 Responses to “Maður veit”


  1. No Comments

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-spam image