Ég kláraði að horfa á Lord of The Rings aftur í gær. Það er ansi mikið verk að horfa á þessar myndir en það tókst í gær þegar ég tók Two Towers og Return of the King á einum degi. Fellowship of the Ring hafði ég horft á fyrir um mánuði síðan. Ég sá allar myndirnar í bíó á sínum tíma og horfði á allt aukaefnið einhver jólin þegar ég eignaðist Return of the King á Special Extended DVD version. Bækurnar hef ég því miður aðeins einu sinni lesið, og það var ábyggilega fyrir svona 10 árum. Þær á ég reyndar líka, auk Hobbitans. Það væri gaman að grípa í þær á næstunni, en enn betra væri sennilega að eignast þær á frummálinu. Maður áttar sig ekki lengur á því hvað er Hollywood drama í myndunum og hvað er frá Tolkien, nú er séns að kíkja á það, þegar myndirnar eru í fersku minni…
Við Bjössi, Davíð og Víðir vorum á Grillhúsinu í kvöld og fengum okkur hambó og svona. Einhvern veginn barst talið að Fahrenheit blessuðum. Við ímynduðum okkur að hann og Celsíus hefðu verið erkióvinir sem hefðu barist um sömu stúlkuna, reynt að heilla hana með því að segja henni hversu ,,heit” hún væri á þeirra eigin kvarða… Þeir bjuggu hvor í sínum turninum, hvítum og svörtum (Fahrenheit bjó auðvitað í svarta turninum) og háðu baráttu góðs og ills, því það er það sem erkióvinir gera. Kaldhæðnin er sú að þeir sáu sama hlutinn einfaldlega öðrum augum.
Þetta hélt áfram: Þegar Celsíus og Fahrenheit voru litlir voru þeir í bekk fyrir sérstök börn í skólanum. Kelvin var auðvitað þar líka (skrítni strákurinn sem borðaði pöddur). Með þeim voru krakkar eins og Richter (með krónískan skjálfta að sjálfsögðu), hávaðaseggurinn Decibel og Meter. Meter hafði svo sem enga sérstaka eiginleika nema hæð hans var nákvæmlega 1 á móti 299,792,458 úr ljós-sekúndu.
Þetta gæti orðið killer barnaefni sko.
Smá fróðleikur í lokin: Sögum ber ekki saman um hvernig Fahrenheit fann núllpunkt hitakvarðans sem kenndur er við hann. Á Wikipedia eru 7 mismunandi sögur um það, en ein sagan segir að 0°F hafi verið lægsti hiti sem hann gat mælt útivið (-17,8°C). Hann hafi svo fest 96°F punkt skalans sem sinn eigin líkamshita og skipt kvarðanum jafnt upp í 12 bil og svo aftur hverju bili í önnur 8. Á þessum kvarða varð frostmark vatns um 32°F og suðumark vatns um 212°F. Nákvæm vísindi! Til samanburðar miðaði Celsíus kvarðinn við frostmark og suðumark vatns sem fastar stærðir, ekki líkamshita og einhvern breytilegan útikulda.
Ansi gott, ég verð að segja að þó að samræðurnar yfir borgurunum hljómi mjög nördalega, þá hefði ég alveg viljað taka þátt
Fahrenheit er einmitt að fara með mig hérna og allar þessar hallærislegu einingar, tomma, 12 tommur í feti, 3 fet í yarda og 128 únsur í galloni (power of two)…. hver á eiginlega að muna þetta
Ég ætla ekki einu sinni að spyrja hvernig samræðurnar yfir borgurunum í MIT eru Siggi minn… En já, imperial kerfið er sennilega það óþjálasta mælieiningakerfi sem til er.
hahaha, þetta er awesome material í barnaefni. Ég myndi actually vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á Celsíus murka lífið úr Farenheit.