Leikhús

Jæja, fór í leikhús í kvöld. Það var helvíti skemmtilegt. Leikritið heitir Þetta er allt að koma og er byggt á samnefndri bók eftir Hallgrím Helgason. Verkið stendur sínu, skilar sögunni vel og heldur sig vel við bókina. Sérstaklega fannst mér sviðsmyndin snilldarlega hönnuð. Hún var svona risastór teningur sem var opinn út í sal. Svo voru 3 hurðir á hliðunum og á milli mótstæðra hurða var færiband svo leikarar og leikmunir komu yfirleitt rúllandi inn á færibandi…

Já. Jón Örn hefur uppi kenningar um að FLOG sé hið svokallaða útópíu-form bloggs. Það sé hin fullkomna blanda hversdagsleika, gríns, pólitíkur, þankagangs, o.s.frv… Að mörgu leyti get ég verið sammála honum. Í öllum hlutum þarf að vera jafnvægi. En ég tel að í tískufyrirbrigðum þurfi ákveðnar sveiflur. Tökum sem klisjukennt dæmi fatatísku. Við kennum fatatísku gjarnan við áratuginn sem hún réði ríkjum yfir og nú á þessum síðustu tímum eru fyrri tískufyrirbrigði óðum að koma inn og út aftur. Ég held að það sama hljóti að eiga við bloggið. Orðið blog er náttúrulega komið úr ensku sem stytting á weblog, þetta er mörgum kunnugt. Það getum við þýtt sem n.k. vefdagbók. Og það snerust fyrstu útgáfur bloggs um, dagbók á netinu. Svo blogg var í upphafi sennilega aðallega daglegt stress, og svo þankahríð, þar sem maður opinberaði hugsanir sínar. Sumir halda sig við einungis annað hvort, aðrir blanda þessu saman o.s.frv. Svo eru til margar aðrar útgáfur bloggs, eins og grínblogg og pólitískt blogg. En það náttúrulega fer eftir smekk hvers og eins hvað hann bloggar um og hvernig stíl hann notar. Og lesandinn lýtur sömu lögmálum. Smekkur hans ræður því hvað hann les. Og smekkur breytist eftir tísku, skapi, vikudegi, bókstaflega hverju sem er. Svo Jón hefur margt fyrir sér í því að FLOG gæti verið hið fullkomna blogg þar sem það höfðar til margra. En ég held að það gildi sömu lögmál um fjölbreytt blogg og önnur blogg, þau komast í tísku og detta aftur út. Núna er floggið vinsælt, hver veit hvar það verður eftir viku, mánuð eða ár?

Nú hefur mér tekist hið sívinsæla sem flestir bloggarar lenda í einhvern tímann; að blogga um blogg.

0 Responses to “Leikhús”


  1. No Comments

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-spam image