að blóka áður en júní er liðinn. Og það í wordpad, sælla minninga… Nú er ég aftur sestur með bolla við hönd en þó ekki með kaffi. Nýlega voru kynnt fyrir mér afar áhugaverðir vatnslosandi eiginleikar sem grænt te hefur með sér að bera. Í dag ákvað ég að prófa slíkt te. Á öðrum bolla dagsins fór ég að finna fyrir vægum sting hægra megin í kviðarholi. Ég hélt áfram að drekka teið og verkurinn hvarf. Enn sem komið er hef ég ekki merkt nein önnur áhrif sem rekja mætti til tevatnsins.
En að öðrum málum og um margt mikilvægari. Hér fyrir nokkru kynnti ég hugmynd sem vakti greinilega athygli nokkurra (einu?) lesenda minna: Sívalur teningur. Þessari hugmynd henti ég fram án nokkurra frekari útskýringa og eðlilega vöknuðu nokkrar spurningar hjá þessum lesendum, enda hugsandi menn. Þeir efuðust um þessa hugmynd, töldu hana stolna eða í besta falli hræðilega ófrumlega. Þegar ég útskýrði málið nánar fyrir herra B sá hann strax að sér og dró til baka fyrri staðhæfingar.
Til þess að koma í veg fyrir frekari misskilning birti ég hér með mynd af teningnum. Hún er mikið einfölduð, ég hafði hugsað mér að láta hvern flöt hliða ,,sívalningsins” vera 1/8 eða jafnvel 1/16 úr pí:
Já Sævar, Þessi teningur er stórmerkilegur, en sökum ómenntunar minnar þá langar mig til að spyrja um notkunarmöguleika teningsins.
Með virðingu og vináttu.
Palli
Annars, um græna teið - ég leyfi mér að efast um vatnslosandi eiginleika þess, þareð það er einkum þekkt fyrir þorstahamlandi áhrif, sérstaklega í hita og þurrki. Það er svosem vitað, að heitir drykkir slá á þorsta, en eiginleikar græns tes umfram aðra drykki eru að því er mér skilst áhrif á vatnsjafnvægi í líkamanum í þá átt að vatnið nýtist betur. Vægur stingur hægra megin í kviðarholi bendir til innkirtla meltingar s.s. lifrar og galls, og tel ég það benda til hreinsandi eiginleika tesins á þessi líffæri.
Já Páll, athyglisgáfa þín er stórgóð, í öllum æsingnum yfir þessari nýju uppgötvun láðist mér að geta um notagildi teningsins. Í stuttu máli sagt er það afar takmarkað. Hugsanlega væri hægt að nota hann í einhvers konar stærðfræðileik, t.d. gæti maður fært leikmann áfram um cos(x) reiti þar sem x er sú tala sem kemur upp á teningnum. Þá koma upp vandamál eins og hvernig á að færa leikmann áfram um √2 reiti…
Leikborðið þyrfti líka að vera skrítið í laginu til að geta fært um √-1 reit…
Skynja ég efasemdir í garð tvinntalna?
Aldrei, en það er bara svo fjandi erfitt að fóta sig í ímyndaða rúminu.