ég hef skrifað eitthvað hér. Sennilega vegna þess að það er alltaf svo mikið að gera í skólanum, talsvert meira en á síðasta misseri held ég. Annars er maður svo spenntur yfir stúdentapólitíkinni að maður er bara að pissa í sig. Vaka fékk 4, Röskva 4, og Háskólalistinn 1 mann. Þetta setur H-listann í lykilstöðu og nú bíða allir agndofa eftir því hvað þeir gera, standa við kosningaloforð og þvinga alla flokka til að vinna saman (óhugsandi, finnst manni), eða munu þeir mynda meirihluta. Já, eins og áður sagði, er ég hrikalega spenntur. En varla svo að ég missi þvag yfir því.
Annars ætti ég sennilega að vera að læra núna, er ekki að meika Greiningu rása eins og er svo ég held ég þurfi að taka það námskeið föstum tökum.
Þetta blogg er ekki eingöngu til að uppfylla væntingar Jóns sem kemur hér á hverjum degi og sér aldrei neitt. Ég skrifa þegar mér dettur það í hug!
0 Responses to “Já, það er langt síðan”
Leave a Reply