Já, fyrsta bloggið á árinu. Og þó fyrr hefði verið. Ég hef talað áður um hversu latur ég er við að blogga og ég held að flest bloggin mín sem eru eitthvað af viti fjalli um að blogga um blogg…
Hvað er að frétta? Takk fyrir að spyrja! Tja jólin voru góð, og áramótin fín líka. Laugardaginn fyrir nýárið fór ég í póker með frændum mínum úr föðurættinni. Ekkert spilað upp á svakalegar fjárhæðir svo ég var ekkert að hafa fyrir því að vinna. Svo bara heima um áramótin og svona.
Um þar síðustu helgi hitti ég verkfræðigengið aftur og við spiluðum Partý og Co. og líka smá póker. Svo drógu Biggi, Hlín og frænka hennar mig niðr’í bæ en ég var ekki lengi með þeim þar. Núna á föstudaginn var hins vegar kveðjukvöldverður fyrir Auði og Beggu á Caruso. Þar voru ansi margar vinkonur þeirra og einhverjir makar mættir og bara mjög skemmtilegt.
Fór líka með Auði á mánudaginn í síðustu viku í Laugar Spa, það var alveg ótrúlega góður dagur. Fórum bæði í nudd og svo fór Auður í fótsnyrtingu. Enduðum á því að prófa ýmsar gufur og slökun og vorum þarna í ca. 6 tíma…
Svo í gær skutlaði ég Auði og Beggu á flugvöllinn í svaka snjókomu. Það var tvísýnt á Aygo, en tókst. Þær þurftu svo að bíða í 2 tíma eftir afísingu. Núna rétt í þessu var ég að fá sms:
Hæ hæ. Komnar í mannhafið hér í Delhi. Aðeins að rifjast upp fyrir manni hvernig það er að vera túristi
![]()
Hvernig hef ég það? - takk fyrir að spurja?!
Fórstu í brasilískt vax í Laugum?
Nei bara svona súkkulaðivax frá Bólivíu. Voða næs.