… er að kveldi kominn. Tók þó forskot á sæluna og var allan sunnudaginn að græja rafnem tölvuverið í VR II. Þetta var svolítið maus en tókst að lokum. Heimasvæðin voru svo afrituð í nótt, tók hátt í hálfan sólarhring! MySQL var svo dumpað yfir í dag þannig að það er flest allt komið í nothæft ástand.
Fór annars í tvo tíma í morgun í þriðja árs stofunni (bara næs að vera kominn þangað). Sá fyrri Hönnun Tölva. Eyddum góðum hálftíma í að fá skjávarpann til að virka. Endaði með því að ég þurfti að taka upp skrúfjárnið… Kennarinn virðist ágætur þar, grínaðist með þetta bara. Svo þegar efnið kláraðist djókaði hann meira og lét þetta gott heita. Svo kom Jóhannes í MOSið. Hann virðist ágætis kall, kannski pínu stífur. Ég ætti kannski ekki að vera að segja þetta svona á opinberum vettvangi, en hey! Ég hlýt að vera haldin sjálfseyðingarhvöt…
Svo er það í fréttum að ég er orðinn dæmatímakennari í tölvunarfræði 1a. Kenni sem sagt einn dæmatíma á viku og 2 tölvuverstíma fyrir utan að fara yfir verkefnin. Kominn með verkefnahólfið 69 ef einhver vill senda mér gamaldags póst, hehe.
O jæja, segi þetta gott í bili! Auður kemur heim á miðvikudagskvöld, ég er að telja niður…
Hér er saga til að sýna hversu mikið Sævar saknar Auðar…
Í brúðkaupi Ragnars bað ég Sævar um að faðma mig því ég væri hræddur við flugelda…
það kom löng þögn…
Verkfræðinemi: Sævar ertu í alvöru að íhuga þetta?
Sævar: Kommon!! Kærastan mín er búin að vera í burtu í mánuð!
Flott að gera við skjávarpann og vera orðinn kennari
Iss ég veit alveg að þú varst ekkert hræddur við flugeldana Jón…
Hvað get ég sagt.. kærasta mín hafði verið í burtu í næstum viku….
Jeminn eru þið alveg bjargarlausir án kærastanna ykkar?
Tjaa.. ég er alltaf Bjargarlaus..
Þú veist við getum ekki lifað án ykkar Vera
Djasskoti gerist lítið hérna Sævar, hvar ertu?
Þú ættir að blogga um þessi batterí maður
Shitt….
fyrsti skóladagurinn
seinasti bloggdagurinn…
Kvitt kvitt
Hér er ég