Farsíma-farsi

Á mánudaginn lenti ég í einu fyndnasta atviki sem ég hef nokkurn tímann upplifað. Þannig var mál með vexti að um ellefu-leytið hringdi í mig maður sem tjáði mér að ég hefði verið að hringja í sig úr númeri sem lettneskur vinur hans ætti. Ég tjáði honum kurteislega að svo hefði ekki verið, enda þekkti ég hann ekki neitt (né Lettan vin hans) og ekki snert á símanum allan morguninn. Hann þrætti við mig um þetta í smá stund, enda sá hann númerið mitt sem “missed call”, en að lokum ákváðum við að vera sammála um að vera ósammála og slitum símtalinu. Stuttu eftir hádegi sama dag hringdi í mig maður af erlendu bergi brotinn. Hann bjóst greinilega ekki við að heyra mína hreinræktuðu og gullfallegu íslensku og varð orða vant. Ég afskrifaði þetta sem “vitlaust númer” og hélt áfram að vinna. Eftir á að hyggja var mjög líklegt að þessi maður hafi verið lettneskur…

Þegar þriðja símtalið barst stuttu síðar, greinilega frá útlendingi sem talaði annars sæmilega íslensku, var mér ekki farið að standa á sama. Ég spurði manninn hvert hann hefði verið að reyna að hringja. Hann tjáði mér að hann væri að hringja í lettneskan vin sinn sem væri með símanúmerið 690-6422. Nákvæmlega sama númer og ég á!

Nú var mig farið að gruna hvað væri í gangi. Ég fór á vef Vodafone og fletti upp símanúmerinu mínu. Merkilegt nokk, þar var númerið mitt skráð eins og ég væri í viðskiptum við Vodafone. Svona til að skýra málin aðeins þá fékk ég þetta símanúmer upphaflega þegar ég hóf viðskipti við Tal hf árið 2000. Það breyttist svo í OgVodafone og árið 2004 skipti ég yfir til Símans. Í fyrra, árið 2007, hætti ég í Frelsi hjá Símanum og fór í reikningsviðskipti. Þannig að það ætti að vera nokkuð ljóst hjá báðum þessum símafyrirtækjum að þetta númer er mitt!

Þannig að ég hringdi í þjónustuver Vodafone. Þar fékk ég þau skilaboð að þar sem númerið væri skráð í þeirra kerfi sem “óskráð frelsisnúmer”, þ.e. frelsisnúmer sem er ekki í símaskrá, þá væri ekkert hægt að gera fyrir mig. Ég þyrfti einfaldlega að hafa upp á þessum grunlausa Letta sem keypti sér frelsisnúmer úti í búð og biðja hann um að skila númerinu. Ég útskýrði að ég hefði nú haft þetta símanúmer til umráða í næstum átta ár og mér fyndist nú heldur hart að ég þyrfti að standa í svona veseni vegna þess að Vodafone seldi einhverjum úti í bæ númerið mitt. Starfsmaðurinn í þjónustuverinu tók fram að þrátt fyrir að hún hefði skilning á vandamáli mínu og tæki sögu mína mjög svo trúanlega, þá væri ekkert hægt að gera. Takk fyrir það, Voðafón!

Nú voru góð ráð dýr. Ég sá fram á a.m.k. tveggja vikna vesen og vitleysu þar sem ég þarf að biðja einhvern Letta um að koma með mér í símabúð að skrifa undir pappíra og hvaðeina. Völundur sá fyrir sér fyrirsagnirnar: “Sævar deildi tóli með ókunnum Letta í sólarhring”. En til allrar hamingju þekkir Andri vinnufélagi starfsmenn innan Vodafone, hann hringdi einhver símtöl, togaði í nokkra spotta og fékk loforð um að þessu yrði kippt í liðinn innan sólarhrings. Að sögn Vodafone tóku þeir “óvart” til sín kippu af farsímanúmerum og skráðu hjá sér sem frelsisnúmer, án þess að kanna fyrst hvort þau væru í notkun hjá öðrum símafélögum. Það hafa víst nokkrir farsímanotendur lent í þessu sama vandamáli í sumar.

Nú er kominn miðvikudagur og ég hef ekkert heyrt frá Vodafone né vinum Lettans. Grey Lettinn veit áreiðanlega ekki hvað hefur gerst því allt í einu er hann ekki lengur með virkt símanúmer! Furðulegast finnst mér þó að Vodafone veit upp á sig sökina, en hefur ekki einu sinni fyrir því að láta mig vita að þetta sé komið í lag. Ég hef því síður verið beðinn afsökunar á óþægindunum af hálfu Vodafone. Hvers konar starfshættir eru það?

1 Response to “Farsíma-farsi”


  1. 1 Bjarni

    Eg verd svo reidur tegar eg les svona, ad teir geti bara ekki lagad sin mistok…aetlast til ad thu hafir upp a tessum blessada Letta.

    Djofull hefdi eg misst mig a starfsmennina hja Vodafone.

  1. 1 Farsíma-farsi - taka 2hinnSævar Öfjörð

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-spam image