Enn hef ég ekkert heyrt frá Vodafone. Ég hef hins vegar frétt í gegnum kunningja vinnufélagans hjá Vodafone að vandamálið hafi verið lagað. Ég sendi því í dag bréf til Vodafone, að mestu leyti óbreytt úr blogginu frá því um daginn, þar sem ég lýsti yfir frati á svona framkomu! Hér er niðurlagið:
Nú hef ég svo sem ekkert sérstakt við það að athuga að Vodafone hafi endurselt símanúmerið mitt. Það voru greinilega hrein og klár mistök sem vonandi leiða til þess að verkferlar verða bættir í þessum málum í framtíðinni. Mér fannst hins vegar viðhorf starfsmanna til vandamála minna áhyggjuefni.
Stúlkan í þjónustuverinu hafði því miður ekki þekkingu til þess að hjálpa mér þrátt fyrir að vera öll af vilja gerð. Hennar uppástunga var að ég myndi hafa samband við Lettann ókunna með tilheyrandi veseni og vitleysu og koma honum í skilning um að hann þyrfti að skila númerinu. Að sjálfsögðu hefði hún átt að vísa máli mínu til einhvers með meiri þekkingu.
Það var frábært að hægt var að leysa vandann, en ég var ekki einu sinni látinn vita formlega að verið væri að vinna í málinu, heldur komu allar slíkar upplýsingar í gegnum fyrrnefndan kunningsskap. Mér fannst hálfpartinn eins og tæknimenn væru að reyna að sópa þessu undir teppið til þess að fela mistök.
Ég hef sem sagt ekki heyrt orð beint frá Vodafone, hvorki til þess að láta mig vita að menn væru að vinna í málinu, né til þess að biðja mig afsökunar á óþægindunum. Ég vona að þið bætið úr þessu í framtíðinni.
Ég læt ykkur vita ef ég heyri eitthvað…
Þetta fer að verða efni í skáldsögu, sem verður svo kvikmynduð
Tom Cruse…
Sævar Öfjörð….
in…. THE CELL!!!
Hann átti símanúmer… en það var endurselt!!!
(Arnold Svartnaggur) THEY TOOK MY NUMBER!!!
Hehehehe (Smá spassakast kl. 7 að morgni)
Two phones….
ONE number….
The epic struggle of a man with the system, leads to multiple homicide and deep self discovery……
Hehehe góðir…
Annars hringdi í mig indæl kona frá Vodafone í dag. Hún tjáði mér að verkferlar sem snerta þessi mál hjá fyrirtækinu yrðu nú teknir til gagngerrar endurskoðunar frá A-Ö. Enn fremur bað hún mig innilegrar afsökunar fyrir hönd fyrirtækisins!
Það kom þá eitthvað gott út úr þessu…
Hahaha, þetta er bara of gott