Ég virðist sjálfkrafa

og ósjálfrátt, algerlega óumbeðinn vera orðinn þáttakandi í svokölluðu blogg-ædoli sem öðlingsdrengurinn hann Jón Örn stendur fyrir (Já eins og sést á myndinni er þetta sætur strákur, stelpur, endilega hringið í hann). En blogg-ædolið já. Þetta er nokkuð sérstakt, ég stend þarna jafnfætis við marga góða bloggara svo ég gæti kannski átt einhverja möguleika. En ég vil taka það sérstaklega fram að þetta blogg er ekki á neinn hátt tengt blogg-ædolinu og er ekki tilraun til að koma mér í mjúkinn hjá (n)einum dómara…

En talandi um Ædol, ég fór í Smáralindina á föstudaginn, svaka stuð. Við vorum að bjóða litlu systur minni út að borða og á Ædolið þar sem hún átti afmæli. Þetta var ágætis skemmtun, heldur mikið af fólki kannski, og helmingurinn af fólkinu var undir 10 ára… En það var líka gaman að vera í beinni útsendingu og svona, sjá svona bak við tjöldin eða hvað maður segir. Sjá Simma æsa Bubba upp í auglýsingahléum og þess háttar…

Ég held ég hafi þetta ekki lengra núna, en komi til SMS-kosningar í blogg-ædolinu munið þið bara að kjósa mig…

0 Responses to “Ég virðist sjálfkrafa”


  1. No Comments

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-spam image