Ég er búinn að vera

í allan dag að gera skýrslu fyrir Rafeindatækni fastra efna. Það á sem sagt að skila þeim öllum á morgun til þess að fá próftökurétt. Við skulum bara orða það svo að það eru margfalt meiri líkur á að maður nái kúrsinum ef maður fær að taka prófið… Svo var ég sem sagt búinn að berjast við það heillengi að fá rétt gildi út úr mælingunum sem ég gerði einhvern tímann í október. Að gera skýrslu svona löngu eftir að tilraunin var framkvæmd minnir á leynilögreglumynd, og maður sjálfur er spæjarinn. Það eru ýmsar athugasemdir, formúlur og vísanir í jöfnur í bókinni hér og þar á pappírum sem geyma líka mæligildin og þessu þarf maður öllu að púsla saman og reyna að fatta hvernig í ósköpunum maður átti eiginlega að gera þetta…

Læt fljóta hérna með fallegt graf. Þetta er sem sagt skeytarýmd í öðru veldi í öfugu hlutfalli við bakspennu fyrir pn-díóðu. Af þessu grafi getur maður t.d. lesið V0, snertispennu díóðunnar, en það er punkturinn sem ég hef merkt inn á grafið.

Skeytarýmd í öðru veldi í öfugu hlutfalli við bakspennu fyrir pn-díóðu

5 Responses to “Ég er búinn að vera”


  1. 1 Svenni

    Sælir Sævar, Mikið áhugaverð lesning þó ég skilji frekar lítið =/… Datt svona bara inn á þessa fróðlegu síðu og upp fóru að rifjast einhverjir tímar í fsu…

    Kv
    SVenni

  2. 2 Ýmir S

    Einhvernvegin veit ég ekki hvernig ég komst í gegnum þennan áfanga, en það hefur þó líklegast eitthvað haft að gera með að ég tók prófið.. Villi er spes..

  3. 3 Jón Örn Arnarson

    Mér finnast punktar skemmtilegir ;)

  4. 4 Sævar

    Svenni: Ég man alltaf þegar við fórum með myndavél í efnafræðitíma, mikið gaman.
    Ýmir: Villi? Því miður enginn Villi í Raf.fast þessa önnina…
    Jón Örn: Hættu í háskóla ÁÐUR en þú lest yfir þig, það er eina ráðið sem ég get gefið þér…

  5. 5 Ýmir S

    Úbbs. Var víst að tala um Rafeindatækni 1..

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-spam image