Ég ætla að segja ykkur stutta sögu. Saga þessi fjallar um lítinn dreng sem var, eins og aðrir litlir drengir á hans aldri, hrekklaus og bjóst aldrei við öðru en hinu góða í mannskepnunni. Við skulum kalla hann Nonna litla. Svo kom að fyrsta skóladeginum hans Nonna litla. Nonni litli varð afar spenntur þegar dagurinn rann upp, en hann var heldur syfjaður, því hann hafði ekkert sofið nóttina áður vegna þess að hann fann fyrir svo miklum fiðringi í maganum af spennu. En jæja, Nonni litli var afar spenntur. Hann fór á fætur og borðaði morgunmat. Því næst útbjó hann nesti; kaffi í hitabrúsa, því þegar litlir drengir fara að ganga í skólann eru þeir næstum orðnir fullorðnir karlmenn! Nonni litli stakk hitabrúsanum í skólatöskuna ásamt skriffærunum sínum og bókum og tölti af stað í skólann. Nonni litli var svo hamingjusamur að hann valhoppaði á leiðinni, þrátt fyrir að göturnar væru glerhálar og hann ætti á hættu að detta og hálsbrotna. En Nonna litla var alveg sama. Hann var á leiðinni í skólann!
Þegar í skólann var komið voru þar fyrir margir nýjir krakkar sem voru líka að byrja í skólanum. Nonni litli var afar spenntur yfir þessu öllu saman. Hann fór inn í kennslusalinn og settist niður. Svo tók hann upp glósubókina og penna til þess að vera alveg tilbúinn þegar kennarinn kæmi og kennslan hæfist. Nú leið dágóður tími og krakkarnir í bekknum voru farnir að ókyrrast. Nonni litli leit á klukkuna sína og fór að verða óþolinmóður, þetta gengi ekki, fyrsti tíminn og kennarinn ekki kominn! Allir 200 krakkarnir í bekknum voru farnir að skvaldra og kasta pappírsskutlum svo það voru farin að myndast læti. Nonni litli trúði þessu ekki. Gat þetta verið að gerast? Hafði skólakerfið brugðist honum?
Í stuttu máli sagt kom að lokum kennari sem sagði að kennarinn sem átti að kenna í tímanum myndi ekki koma í dag. Nonni litli bugaðist og hjarta hans brast að lokum. Hann kláraði aldrei skólagöngu því hann var of tortryggin út í íslenska menntakerfið…
Hvaða lærdóm getum við dregið af þessari dæmisögu?
0 Responses to “Dæmisaga”
Leave a Reply