Archive for the 'Skóli' Category

Allir ráðnir í bankana

Rakst á þessa stuttu frétt í viðskiptablaðinu Markaðurinn í dag:

Eftir því sem fjármálalíf og viðskiptagjörningar hafa orðið flóknari hafa bankar og aðrar fjármálastofnanir síðustu ár sóst í auknum mæli eftir hámenntuðu starfsfólki með annan grunn að baki en í viðskiptum og hagfræði. Eðlisfræðingar, stærðfræðingar og verkfræðingar eru heitir. Til marks um það barst Markaðnum til eyrna á dögunum að bankarnir hefðu ráðið alla þá rafmagnsverkfræðinga sem útskrifuðust frá Háskóla Íslands í vor og enginn þeirra því farið í önnur störf utan fjármálageirans. Varð einum heimildarmanna á orði að bankarnir hefðu hreinað upp allt nýja blóðið á markaðnum.

Svo skemmtilega vill til að ég tilheyri þessum hópi sem útskrifaðist úr rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands í vor. Og… ég vinn ekki í fjármálageiranum. Þarf ég að segja meira?

Einkunnaskil

Í hausnum er nú hægt að fylgjast með niðurtalningu í útskriftarferð R&T verkfræðinema… Takið eftir skemmtilegum effect á heila tímanum. Höddi á heiðurinn af teljaranum. Hér er svo hægt að fylgjast með einkunnaskilum: