Færslur fyrir flokkinn 'Blogg'

Móðir mín í sóttkví

Í tilefni af svínaflensu:

Móðir mín í sóttkví,
kvíddu ekki því, því;
ég skal ljá þér grímuna mína
að anda í
og anda í.

Og svo ein fyrir Keikó, því það átti víst aldrei að frelsa hann.

Keikó minn í kví, kví,
kvíddu ekki því, hví?
Ég skal ljá þér laugina mína
að synda í
og synda í. 

Aygo til sölu

Rauður Toyota Aygo 2005 til sölu. Ekinn um 35 þúsund kílómetra. Fæst gegn yfirtöku + kostnaður, áhvílandi er um 1.100.000 og mánaðargreiðsla um 31-32 þúsund. Lánið er íslenskt hjá SP fjármögnun. Ath þetta er bílasamningur svo SP er eigandi bílsins. 4 sumardekk og 4 vetrardekk fylgja.

Frekari upplýsingar í síma 690-6422 eða á saevar (a) saevar.is

QR kóðar

QR kóðar eru víst það heitasta í Japan í dag, og eins og allir vita þá eru Japanir trendsetterar dauðans í öllu sem viðkemur tækni (já eða ekki tækni). Mér datt því í hug að prófa þetta QR dót og setti þetta upp á símann minn. Og viti menn, þetta er mjög sniðugt. Það er hægt að lesa þessa kóða með myndavélinni í símanum og greina skilaboðin sem eru kóðuð í myndina með sérstöku forriti (ég notaði UpCode). Svo fer það eftir því hvort skilaboðin eru texti, URL eða símanúmer hvernig síminn bregst við. Ef skilaboðin eru t.d. URL þá reynir síminn að fara beint á síðana sem slóðin bendir á. Hér fylgir mynd sem þið getið notað til að prófa, annars er auðvelt að búa til þessar myndir á qrcode.kaywa.com

Arduino og ljósdíóður

Ég fann gífurlega þörf fyrir að föndra með rafmagn í gær svo ég ákvað að setja saman þrívíðan tening úr ljósdíóðum. Hér gefur að líta aðstæður á stofuborðinu þegar þetta fór loksins að virka:

Kubburinn er þannig uppbyggður að katóður í hverju plani eru allar tengdar saman og svo er hver dálkur tengdur saman. Þetta þýðir að ekki er hægt að stýra hverri einustu ljósdíóðu beint, sem aftur þýðir að ekki er hægt að kveikja á mörgum díóðum samtímis. Bæði þolir Arduino örstýringin ekki allan strauminn sem myndi þurfa, auk þess sem það myndi renna straumur í gegnum díóður sem ég vil ekki hafa kveikt á. Þá er notast við fyrirbæri sem kallast á ensku persistence of vision, sem ég man ekki í augnablikinu hvað heitir á íslensku. Augun í okkur mannfólkinu virka á ca. 25 riðum, sem þýðir að sjónin okkar uppfærist 25 sinnum á sekúndu. Ef ég vil láta líta út fyrir að það logi á tveimur díóðum þrátt fyrir að geta bara kveikt á einni í einu, þá einfaldlega blikka ég á milli þeirra mjög hratt, a.m.k. hraðar en 25 sinnum á sekúndu, þannig að okkur sýnist díóðurnar loga samtímis. Hugsanlega sýnist okkur þó ljósmagnið vera vera minna, þ.e. díóðurnar gætu virst daufari.

 Ég svindlaði dálítið og notaði kóða frá www.stationinthemetro.com, kóðinn notast við aðferðina sem ég var að lýsa hér að ofan. Kosturinn við þessa aðferð er að ég þarf ekki að nota transistor eða multiplexer til þess að senda boð á díóðurnar, heldur get ég tengt 9 dálka og 3 plön beint í stýringuna.

Jæja, nú þarf ég að hætta þessu blaðri og sýna einhverjar niðurstöður! Hér gefur að líta afraksturinn:


Led Cube 3×3 Arduino from Sævar Magnússon on Vimeo.

Ábyrgð ráðherra

Alveg finnst mér með ólíkindum að nú, tveimur mánuðum eftir hrun bankanna, hafi enginn lyft litlafingri til þess að rannsaka ábyrgðir málsaðila, hvort sem þeir eru viðskiptamenn eða stjórnmálamenn. Mig langar t.d. að vitna í 10. gr. laga nr. 4 frá 1963:

Loks verður ráðherra sekur eftir lögum þessum:
a. ef hann misbeitir stórlega valdi sínu, enda þótt hann hafi ekki beinlínis farið út fyrir embættistakmörk sín;
b. ef hann framkvæmir nokkuð eða veldur því, að framkvæmt sé nokkuð, er stofnar heill ríkisins í fyrirsjáanlega hættu, þótt ekki sé framkvæmd þess sérstaklega bönnuð í lögum, svo og ef hann lætur farast fyrir að framkvæma nokkuð það, er afstýrt gat slíkri hættu, eða veldur því, að slík framkvæmd ferst fyrir.

Enn fremur langar mig til að benda á landsdóm, sem hefur aldrei í sögu Íslands verið kallaður saman, en dómur þessi á að fjalla um mál sem Alþingi höfðar gegn ráðherrum í embættisrekstri þeirra.

Mæli með því að þið horfið á þessa mynd, ef þið hafið efasemdir um peningakerfið sem er við lýði:

Zeitgeist fer svo enn ítarlegra í málin og snertir á mörgum öðrum flötum. Mjög hollt að horfa á þetta.

Um nauðsyn þess að brosa á þessum síðustu og verstu

Það er óneitanlega undarlegt ástandið í þjóðfélaginu í dag. Flest allir Íslendingar bíða þess í óvissu að ástandið breytist til hins betra og á meðan er óljóst hvort allir haldi vinnunni sinni og þar með húsnæðinu og svo framvegis. En ég ætla sko ekki að vera með eitthvað svartsýnisraus hérna, það er nóg af því alls staðar. Ég vildi bara minna ykkur á það að það er nauðsynlegt að gefa áhyggjunum smá frí öðru hverju og brosa og hlæja aðeins á þessum síðustu og verstu tímum… Myndir af litlum og sætum kettlingum eru sérstaklega góðar til þess að vekja kátínu:

Þessi átti sko ekki hlutabréf í Landsbankanum.

Þessi átti sko ekki hlutabréf í Landsbankanum.

Hversu þreytt sem þið eruð orðin á því að hlusta á fréttir af fjármálaheiminum eða fylgjast með blaðamannafundum í Iðnó, þá getið þið huggað ykkur við það að þið verðið sennilega aldrei eins þreytt og þessi gaur:

Þessi sofnaði yfir innihaldslausum svörum Jóns Ásgeirs í Silfri Egils.

Þessi sofnaði yfir innihaldslausum svörum Jóns Ásgeirs í Silfri Egils.

Women - Know your limits

Ég er nú ekkert sérstaklega mikil karlremba, en mér finnst gaman þegar gert er grín að gömlum og úreltum sjónarmiðum:

Til að mynda þótti skelfilegt áður fyrr þegar konur reyndu að hafa eigin skoðanir á hlutunum:

Eða þegar þær vildu keyra bíl:

Eða stunda samkvæmislífið:

Farsíma-farsi - taka 2

Enn hef ég ekkert heyrt frá Vodafone. Ég hef hins vegar frétt í gegnum kunningja vinnufélagans hjá Vodafone að vandamálið hafi verið lagað. Ég sendi því í dag bréf til Vodafone, að mestu leyti óbreytt úr blogginu frá því um daginn, þar sem ég lýsti yfir frati á svona framkomu! Hér er niðurlagið:

Nú hef ég svo sem ekkert sérstakt við það að athuga að Vodafone hafi endurselt símanúmerið mitt. Það voru greinilega hrein og klár mistök sem vonandi leiða til þess að verkferlar verða bættir í þessum málum í framtíðinni. Mér fannst hins vegar viðhorf starfsmanna til vandamála minna áhyggjuefni.

Stúlkan í þjónustuverinu hafði því miður ekki þekkingu til þess að hjálpa mér þrátt fyrir að vera öll af vilja gerð. Hennar uppástunga var að ég myndi hafa samband við Lettann ókunna með tilheyrandi veseni og vitleysu og koma honum í skilning um að hann þyrfti að skila númerinu. Að sjálfsögðu hefði hún átt að vísa máli mínu til einhvers með meiri þekkingu.

Það var frábært að hægt var að leysa vandann, en ég var ekki einu sinni látinn vita formlega að verið væri að vinna í málinu, heldur komu allar slíkar upplýsingar í gegnum fyrrnefndan kunningsskap. Mér fannst hálfpartinn eins og tæknimenn væru að reyna að sópa þessu undir teppið til þess að fela mistök.

Ég hef sem sagt ekki heyrt orð beint frá Vodafone, hvorki til þess að láta mig vita að menn væru að vinna í málinu, né til þess að biðja mig afsökunar á óþægindunum. Ég vona að þið bætið úr þessu í framtíðinni.

Ég læt ykkur vita ef ég heyri eitthvað…

Plötuspilarinn

Plötuspilarinn hamast á Edith Piaf

Plötuspilarinn hamast á Edith Piaf

Við Auður fengum um daginn forláta Pioneer plötuspilara að gjöf. Svo óheppilega vildi til að reimin í honum slitnaði nokkrum dögum eftir að við fengum hann. Ég fór svo í Ormsson á fimmtudaginn og keypti nýja reim, svo nú er aldeilis hægt að hlusta. Myndin er af plötuspilaranum að spila gömul lög með Edith Piaf, voðalega notalegt svona í skammdeginu.