Blogg um blogg um blogg

Ég var að lesa gamalt blogg frá mér hérna áðan, vegna þess að Völundur minntist eitthvað á Löngu Trúlofunina. Svo þegar ég fór að lesa þessa færslu rakst ég á það þegar ég tala um hversu mikið ég blogga um blogg…

Svo ég ákvað - svona til tilbreytingar - að blogga aðeins um blogg.

Ég held að ástæðan fyrir því að ég held þessari síðu úti sé sú að þó ég sé kannski ekki mjög duglegur við að blogga, þá er þetta eitthvað sem höfðar til mín. Kannski hentar mér það bara betur að vera hlutlaus áhorfandi í þessu sporti, á svipaðan hátt og margir stunda fótbolta gegnum sjónvarp. Sjálfum finnst mér gaman að lesa góð blogg og langar kannski að vera með í leiknum, með misjöfnum árangri… Þetta er svona svipað og greinin sem ég las í blaðinu um umboðsmenn allra frægu tónlistarmannanna, flestir þeirra byrjuðu í tónlistarbransanum sem tónlistarmenn en komust að þeirri niðurstöðu að þeir væru betur settir bak við tjöldin.
Þrátt fyrir allt saman hef ég gaman að bloggi almennt (í hófi) og les reglulega nokkur vel valin.

Þannig að þó að upphaflegur tilgangur með blogginu hafi verið að koma einhverju frá sér hefur tilfinningin samt kannski alltaf verið sú að ég sé betur settari bak við tjöldin - þar sem ég reyndar ver umtalsverðum (Auður myndi sennilega segja ‘óhóflegum’) tíma!

4 Responses to “Blogg um blogg um blogg”


  1. 1 DJ Völmer Ho

    Heyrðu, það er flott maður.

    Þú ættir þá kannski að gerast umboðsmaður hetjubloggara, á borð við Bjössa Liðhlaups og Katrinar.is?

  2. 2 Inga

    skemmtilega óhefðbundið blogg :) ákvað að kvitta fyrir stoppið hér!

  3. 3 Veit ekki Völundur

    Ég held þú sért lélegasti bloggari í heimi, fyrir utan Auði. hahahaha, meira að segja ég er skárri.

  4. 4 Veit ekki Völundur

    Nei, okei, tek þetta til baka . þú ert búinn að blogga núna

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-spam image