Ég var að elda og borða svakalega djúsí hamborgara áðan. Hann var með skinku, osti, piparosti, papriku, tómötum, lauk, káli, steiktum sveppum, eggi, tómatsósu og dijon-sinnepi. Ætli sé hægt að fá hamborgara einhvers staðar í bænum sem býður upp á 11 álegg?
Author Archive for Sævar Öfjörð
Rúv+, Skjáreinn+, Stöð2+… Hvað er næst? Rúv++, Skjáreinn+24, Stöð2+365? Bráðum fara að myndast hópar í samfélaginu sem lifa klukkutíma á eftir öllum hinum. Þetta byrjar sakleysislega, það er sniðugt að geta horft á fréttirnar klukkutíma síðar ef maður kemur seint heim eða horft á uppáhaldsþáttinn sinn á Skjáreinn+ vegna þess að maður tafðist í umferð. Næst ferðu að treysta á þessa nýju leið til að horfa á sjónvarp og dagurinn er allt í einu orðinn klukkutíma lengri.
Þegar tækninni fleygir svo fram og afþreyingarmöguleikum fjölgar verðum við væntanlega komin með enn fleiri stöðvar; Stöð2++, Skjáreinn+24… Allt í einu ertu farinn að fylgjast með fréttum degi á eftir öllum öðrum, í partíum þarftu að hópa þig með þeim sem sitja í sömu súpunni svo umræðan um málefni “líðandi stundar” verði ekki stórundarleg. Fyrr en varir ertu búinn að tapa viku úr lífi þínu, horfir á Rúv+7 og átt erfitt með að skilja af hverju það er alltaf rigning þegar veðurfréttamaðurinn spáir sólskini.
Á endanum hlýtur svo að koma að því; stofnað verður félagið 365+ utanum rekstur fjölmiðlasamsteypu sem birtir ársgamalt efni fyrir ekta íslenska “frestara” (e. procrastinator). Þetta systurfélag 365 verður stærra með hverjum ársgömlum deginum og á endanum verður ákveðið að þurrka út heilt ár úr Íslandssögunni, enda allir hættir að lifa í nútímanum.
Rétt í þessu greip um sig mikil geðshræring í Skaftahlíð 10 þegar við komumst loksins í samband við internetið… Það er því við hæfi að henda inn einni bloggfærslu um frekar viðburðaríka viku.
Á mánudaginn hringdi Gaui frændi minn sem er bílasali í mig og sagðist vera með bíla í sigtinu. Ég tékkaði á þeim og leist ágætlega á 2ja ára gamlan Aygo. Ég keypti hann svo síðar um daginn. Á miðvikudaginn flutti ég í Skaftahlíðina og í dag komum við ljósleiðaratengingunni í gagnið… Svo fylgja hérna nokkrar myndir:
Ætli það sé ekki best að ég greini örlítið frá því hvað hefur gerst í lífi mínu undanfarna viku:
Við fundum ágætis íbúð, skoðuðum hana og slógum til. Á miðvikudaginn gáfum við út víxil og á laugardaginn var skrifað undir samninginn. Víxillinn var nota bene til þess að bankinn hefði tryggingu fyrir bankaábyrgðinni sem hann veitti út á leiguna. Ég skil þetta ekki, af hverju er ekki nóg að gefa bara út víxil? Íbúðin er að Skaftahlíð 10 og ég býst við að flytja inn í vikunni.
Á laugardaginn fyrir rúmlega viku hjálpaði pabbi mér að laga bílinn svo lítið sést á honum. Það er ekki komin nein sekt eftir myndatökuna góðu svo ég held bara áfram að krossleggja fingurna…
Um helgina var ég að vinna fyrir Exton. Vorum að setja upp Ísmót 2007 og Norah Jones tónleikana. Ég var svo á tónleikunum sjálfum en var svo þreyttur að ég sofnaði næstum því nokkrum sinnum. Enda hjálpaði ekki að tónlistin var í rólegri kantinum. Hún var líka svolítið í því að djóka, sagðist hafa fengið æðislega pulsu á Bæjarins Bestu, með steiktum lauk, tómatsósu, remúlaði og sinnepi. Eftir næsta lag sem var eitthvert ástarlag sagðist hún næstum hafa verið að syngja til pulsunnar… Hún sagðist líka ætla að fá sér pulsu í morgunmat daginn eftir. Bæjarins Bestu voru greinilega að slá í gegn hjá Noruh!
Svo er ég aftur orðinn dæmakennari í Tölvunarfræði 1a sem ég fæ að sinna meðfram vinnunni. Er með dæmatíma og vertíma í hverri viku fram að jólum og líst bara ágætlega á þetta.
Já þetta hefur vægast sagt verið erfið vika. Það gengur ekkert að finna íbúð. Ég, Bjössi og Víðir vorum með eina góða í sigtinu, en það varð ekkert úr því. Við höldum því áfram að leita.
Á þriðjudaginn keyrði ég aftan á bíl á Hringbraut. Það var ekkert alvarlegt, bara blautt malbik og bílarnir á undan hemluðu frekar snögglega. Svo ég sat uppi með brotið framljós og beyglaða vélarhlíf. Ég ýtti nú bara hraustlega á vélarhlífina og hún er sæmileg á eftir.
Í gær var ég að keyra heim eftir langan vinnudag, fer á 80 yfir ljósin á Hringbraut/Njarðargötu, og fæ tvö góð flöss frá helvítis hraðamyndavélinni. Þannig að ég má búast við 10-15.000 króna sekt…
Í dag keypti ég nýtt framljós í Vöku. Þegar heim var komið eftir annan erfiðan vinnudag ætlaði ég sko aldeilis að komast í gegnum fyrstu bílaviðgerðina aleinn! Þá kemur í ljós að helvítisstuðarinn hafði beyglast líka svo óbrotið og heilt ljós komst ekki inn fyrir. Urrr. Og til að toppa það datt grillið af þegar ég opnaði húddið…
Það lítur því út fyrir að ég þurfi nýjan stuðara og nýtt grill líka, ef ég næ ekki að berja þann gamla í fyrra horf.
Mér líður aðeins betur núna, eftir að hafa ausið úr skálum pirringsins…
Þá er loksins komið almennilegt útlit á þetta blessaða “blogg”. Ég notast við viðbót ofan á Wordpress sem heitir K2, og þemað þar ofan á heitir TrueBlue. Það eru skemmtilegir Ajax fídusar í þessu dóti öllu saman, eins og stikan hérna efst, og leitarboxið uppi til hægri. Reyndar virkar það ekki almennilega enn… vona að ég sparki því í gang sem fyrst.
Þá er ég líka búinn að tengja Picasa albúmin mín hérna inn á bloggið, sem gerir það mun heimilislegra…
Svo er ég farinn að reka hálfgerða góðgerðastarfsemi fyrir ferðamenn, ég skráði mig á CouchSurfing.com og býð gistingu handa vel völdu ferðafólki… Búinn að fá hingað eina stúlku frá New Jersey. Hún heitir Danielle og á 11 ketti. Í vikunni kemur skiptinemi sem fær ekki íbúð strax, og svona gengur þetta.
Ég fékk Goggaljóð um mig frá Jóni:
Vangasvipur Öfjörð
Í gegnum myrkur
vangasvipur Öfjörð
einsog dagsetningsem öll tímabelti
styðjaraunverulegt nafn
staðsetning og / eða
heimilisfang er óákveðinhöfuð yfir öxl jafningja
Öfjörð leitar heimilisfangs
sem sennilega byrjar eins
og það endarstaðsetning og / eða
heimilisfang er óákveðin
Upprunaleg heimild og fleiri ljóð hér.
Í dag var frétt á mbl.is: “Iðnaðarráðherra mælir með nýyrðinu aflþynna”. Að mínu mati er þetta “nýyrði” rangnefni. Í fréttinni er sagt að orðið “aflþynna” sé þýðing á enska orðinu “capacitor”. Nú hef ég setið þó nokkra kúrsa um rafmagnsfræði og veit því að það er til fullgilt íslenskt orð fyrir “capacitor”, en það er þéttir, eða rafþéttir. Eftir því sem ég best veit framleiðir umrætt fyrirtæki, Becromal, álþynnur sem notaðar eru í þétta.
Eins og sést á myndinni hérna að ofan er algeng gerð af þétti þannig uppbyggð að tvær málmþynnur eru lagðar saman með óleiðandi efni á milli, sem veldur því að rafsvið myndast milli málmanna. Sennilega hefur orðið einhver misskilningur hjá iðnaðarráðherra og hans fólki, og hann hefur ætlað að koma með nýyrði fyrir þessar blessuðu málmþynnur. Það er hins vegar fullkomlega tilgangslaust að koma með sérstakt orð yfir þær ýmsu málmþynnur sem notaðar eru í þétta, þar sem við getum einfaldlega notað orðin álþynna, koparþynna, o.s.frv.
Mynd fengin hér.
Rakst á þetta einkaleyfi fyrir ofurraunverulegu kvikmyndahúsi. Það gerir ráð fyrir myndvarpa með 300° fiskaugalinsu, ásamt kvikmyndatjaldi sem nær yfir 300° svið. Þá er vökvastýring á gólfinu undir sætunum (sem eru nota bene með beltum) sem getur látið gólfið hreyfast með atburðarás kvikmyndarinnar sem sýnd er. Hægt er að taka upp ákveðið hreyfimynstur og geyma það á floppy-disk til síðari nota. Þá skal notendaviðmót stjórnkerfisins vera valmyndadrifið, til þess að lágmarka þörf á starfsþjálfun…
Ætli það sé eitthvað svona sem er verið að meina þegar talað er um hátæknisjúkrahús?
Jæja, það er liðið ansi langt síðan það kom eitthvað hérna síðast. Myndin hérna til hliðar á ekki að vera svar við spurningunni í titlinum, ef einhver er að spá í því… Fór á tónleika í gærkveldi með Völundi og Jóni Erni, baráttutónleika gegn nauðgunum, á Grand Rokk. Sennilega bjánalegasta tónleikauppsetning sem ég hef séð, sviðið pínulítið, engin aðstaða fyrir flytjendurna sem þurftu að troðast gegnum mannþröngina með hljóðfærin. Jón Örn gafst held ég upp eftir hálftíma en ég og Völundur þraukuðum og tróðum okkur við hliðina á Elínu og Hlíf. Mér fannst Sprengjuhöllin skemmtilegust, Wulfgang var skemmtileg en maður átti svolítið erfitt með að taka augun af söngvaranum, hann kipptist svo mikið til að ég hélt hann væri kannski flogaveikur greyið. Grapevine kallar hann ,,Elvis of Iceland”… Ég hafði aldrei séð Diktu á sviði svo það var gaman, og Pétur Ben var auðvitað ótrúlega góður. Mér fannst sérstaklega flott þegar hann hætti að syngja í mækinn og slökkti á gítarnum, held honum hafi ofboðið lætin í liðinu sem var að spjalla í salnum eins og það væri saumaklúbbur.
Verslunarmannahelgin: Er á báðum áttum. Hálfpartinn langar mig bara að hanga heima, en það væri líka gaman að vera í útilegu. Held að ég sitji rigninguna af mér heima föstudag og laugardag, en kíki kannski í útilegu 1-2 kvöld.
Og já, ég svara kannski spurningunni í titlinum seinna…



Nýjustu komment
RSS