Ég var að fá í hendurnar Arduino þróunarborð. Arduino er það sem er hipp og kúl í rafeindatækni-fikti í dag, mér leist vel á þetta og ákvað að prófa. Arduino þróunarborðið er mjög lítið, eða 6.9 x 5.3cm, og getur keyrt á USB spennufæðingu einni saman. Það gerir það að verkum að það er einstaklega meðfærilegt og ekki spillir að það kostar einungis $34.95 á SparkFun.
Þetta þróunarborð er byggt á ATMega 168 örstýringu og keyrir á 16 MHz. Það hefur 14 stafræna I/O pinna (af þeim 14 geta 6 verið PWM úttak), 6 hliðræna inntakspinna og hefur um 16 KB af flash minni. Forritunarumhverfið fyrir Arduino miðar að því að vera einfalt svo allir geti verið með, en er um leið mjög sveigjanlegt svo reyndir notendur geti gert flókna hluti. Það er byggt á Processing þróunarumhverfinu.
Þegar ég fékk borðið í hendurnar byrjaði ég á að setja upp USB driverinn. Það gekk ekki alveg nógu vel þar sem leiðbeiningar voru allar fyrir Windows XP en ég var að nota Windows Vista. Lykilatriðið var að leyfa Windows ekki að leita að driver á Windows Update, heldur fara handvirkt inn í Device Manager, hægrismella á USB device sem er með gulum þríhyrning, og velja ‘Update driver’. Þá er hægt að benda á möppuna með réttum driver. Ég þurfti reyndar líka að sækja driverinn beint frá FTDI.
Næst sótti ég Arduino þróunarumhverfið. Einfaldlega unzippa því og opna arduino.exe. Fyrsta prufuforritið er að sjálfsögðu klassískt: Blikka díóðu. Með Arduino forritinu fylgja nokkur sýnidæmi og Blink er eitt af þeim.
int ledPin = 13; // LED tengd í digital I/O 13
void setup() // setup() er keyrt 1x, í byrjun forrits.
{
pinMode(ledPin, OUTPUT); // setur pinna 13 sem output
}
void loop() // lykkja sem keyrir út í hið óendanlega
{
digitalWrite(ledPin, HIGH); // Kveikt á díóðu
delay(1000); // Beðið í 1 sekúndu
digitalWrite(ledPin, LOW); // Slökkt á díóðu
delay(1000); // Beðið í 1 sekúndu
}
Þetta er með einfaldari blikka-díóðu tilraunum sem ég hef gert, og hef ég prófað það á nokkrum tegundum örstýringa. Ég kompælaði kóðann og sendi hann í kubbinn og það svínvirkaði. Ég þurfti ekki einu sinni að tengja díóðu því pinni 13 er tengdur í innbyggða ljósdíóðu!
svalt
Var að panta svona, algjör snilld
ertu búin að nota það í eitthvað?
Bara nokkur lítil test. Það er t.d. mjög auðvelt að tengja Arduino við Processing (http://processing.org/) og búa til lifandi gröf eða hvað sem manni dettur í hug með gögnum frá Arduino.
Svo bjó ég til þennan 3×3 díóðutening: http://www.saevar.is/blog/arduino-og-ljosdio%c3%b0ur/
Arduino er mjög skemmtilegt, keypti nokkur stykki á Sparkfun. En vitið þið hvort einhver sé að selja AVR (atmel) kubba hérna á Íslandi?