Annar bloggdagur skólaársins…

… er loksins upp runninn! Ég veit að Jón hefur beðið þessa dags lengi…

Það er nú aldeilis búið að ljúka miklu af í dag. Ég vaknaði, fór út í bakarí í snarklikkuðu roki, borðaði, setti í þvottavél, mætti í tíma, fór yfir 21 skilaverkefni, bjó til lausnavef fyrir nemendurna í dæmahópnum mínum, bjó til lausn á verkefni 6, borðaði, kenndi dæmatíma, sendi inn lausn mína á verkefni 3 í gagnasafnsfræði, leysti eitt dæmi í hönnun tölva, fórum út í Bónus, keyptum þar fyrir 16.000, fórum heim, tróðum einhvern veginn matnum inn í ísskáp og frysti (eftir tiltekt í frysti), vöskuðum upp, elduðum geðveikt góðan mat (tortilla), horfðum á nokkra sjónvarpsþætti, komst að því að Auður hafði sett í tvær þvottavélar til viðbótar, ætlum að horfa á einn þátt enn en ekki fyrr en búið er að taka úr vélinni… Og það ætla ég að gera núna! Og að hugsa sér að ég svaf ekki nema í svona 3 tíma í nótt. Veðrið var helvíti leiðinlegt fyrir utan og lamdi meðal annars trampólíni nágrannans ansi utan í girðingu hálfa nóttina…

En á meðan ég man: Fyrir þau ykkar sem eru ekki klár á því af hverju fartölvurafhlöður endast ekki, hér er svarið.

5 Responses to “Annar bloggdagur skólaársins…”


  1. 1 Auður

    og hvað haldiði svo… við sofnuðum auðvitað ekki fyrr en seint og síðarmeir í gærkveldi og síðan reif maður sig á fætur fyrir allar aldir. Mér líður því núna eins og undinni tusku!
    Ætli það sé nokkuð samt svo slæmt ef maður hugsar út í það??? Mín fer beint á ofninn og fær að hlýja sér eftir sturtuna…………
    Mér myndi samt ekki líða neitt svo afskaplega vel ef það væri snúið svona harkalega uppá mig alla - en ég er heldur ekki tuska….

  2. 2 Auður

    og hey, ég er komin heim!
    Þrátt fyrir að í dag sé þriðjudagskvöld… :Þ

  3. 3 Jón Örn

    Skemmtilegt!

    Takk Sævar

  4. 4 Auður

    Fer ekki að líða að þriðja bloggdegi annarinnar???

  5. 5 Sævar

    Jú hann er liðinn, missti af honum…

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-spam image