Allir ráðnir í bankana

Rakst á þessa stuttu frétt í viðskiptablaðinu Markaðurinn í dag:

Eftir því sem fjármálalíf og viðskiptagjörningar hafa orðið flóknari hafa bankar og aðrar fjármálastofnanir síðustu ár sóst í auknum mæli eftir hámenntuðu starfsfólki með annan grunn að baki en í viðskiptum og hagfræði. Eðlisfræðingar, stærðfræðingar og verkfræðingar eru heitir. Til marks um það barst Markaðnum til eyrna á dögunum að bankarnir hefðu ráðið alla þá rafmagnsverkfræðinga sem útskrifuðust frá Háskóla Íslands í vor og enginn þeirra því farið í önnur störf utan fjármálageirans. Varð einum heimildarmanna á orði að bankarnir hefðu hreinað upp allt nýja blóðið á markaðnum.

Svo skemmtilega vill til að ég tilheyri þessum hópi sem útskrifaðist úr rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands í vor. Og… ég vinn ekki í fjármálageiranum. Þarf ég að segja meira?

5 Responses to “Allir ráðnir í bankana”


  1. 1 Bjarni

    Svo er spurning hvernig þeir skilgreina “rafmagnsverkfræðinga” eru það þeir sem hafa lokið masters prófi? Ef svo er þá útskrifaðist 1 með masters próf úr rafmagnsverkfræði síðasta vor, Erlingur Brynjúlfsson. Kannski er hann að vinna hjá bönkunum.

    Þá eru allir að vinna hjá bönkunum. Þetta er annar vinkill á málið…

  2. 2 Siggi

    Jæja jæja… Man einhver þegar viðskiptablaðið birti að úrvalsvísitalan hefði hækkað um 8 % fyrir hádegi þann daginn (fyrisögnin) ? Neðar í fréttinni stóð að mesta hækkun þeirra félaga sem eru í vísitölunni hefði verið um 2-3%.
    Að því gefnu að vísitalan er vegið meðaltal þeirra félaga sem í henni eru þóttu öllum mjög merkilegt að þessi frétt hefði komist í gegnum alla þá ritstjórn sem á sér stað af mjög hæfu fólki innan markaðsfréttablaða íslands.
    Ég verð að segja að mér finnst heimildir þessarar fréttar og þeirrar sem ég sagði frá vera vafasamar í besta falli og það eina sem fréttin segir mér er að það er allavega ljóst að enginn verkfræðingur var ráðinn til Markaðsfrétta þetta árið …

  3. 3 Sævar Öfjörð

    Tja ef þeir áttu við nema sem útskrifuðust úr mastersnámi, og hann var bara einn, þá finnst mér það ekkert svo heit frétt…

    Ég held að þessar fréttir um að hin og þessi fyrirtæki hafi ráðið heilu árgangana úr hinu og þessu fagi séu bara algengar flökkusagnir. Ég man eftir að hafa heyrt um að Conexant hafi ráðið heilan árgang úr R&T á sínum tíma. Held svona einhvern veginn að þar hafi eitthvað svipað gerst.

  4. 4 baldur

    ég ætlaði að skrifa eitthvað en svo fattaði ég að ég útskrifast ekki fyrr en um næstu helgi.

  5. 5 Sævar

    Ok þú mátt vera með eftir þá helgi… Til hamingju annars!

Leave a Reply

*
To prove you're a person (not a spam script), type the security word shown in the picture.
Anti-spam image