Alveg finnst mér með ólíkindum að nú, tveimur mánuðum eftir hrun bankanna, hafi enginn lyft litlafingri til þess að rannsaka ábyrgðir málsaðila, hvort sem þeir eru viðskiptamenn eða stjórnmálamenn. Mig langar t.d. að vitna í 10. gr. laga nr. 4 frá 1963:
Loks verður ráðherra sekur eftir lögum þessum:
a. ef hann misbeitir stórlega valdi sínu, enda þótt hann hafi ekki beinlínis farið út fyrir embættistakmörk sín;
b. ef hann framkvæmir nokkuð eða veldur því, að framkvæmt sé nokkuð, er stofnar heill ríkisins í fyrirsjáanlega hættu, þótt ekki sé framkvæmd þess sérstaklega bönnuð í lögum, svo og ef hann lætur farast fyrir að framkvæma nokkuð það, er afstýrt gat slíkri hættu, eða veldur því, að slík framkvæmd ferst fyrir.
Enn fremur langar mig til að benda á landsdóm, sem hefur aldrei í sögu Íslands verið kallaður saman, en dómur þessi á að fjalla um mál sem Alþingi höfðar gegn ráðherrum í embættisrekstri þeirra.
það er actually svo lítið búið að nota þennan bókstaf um landsdómin að hann er orðinn geldur! Alveg frábært að lög þurfa bæði að hafa tilvist og FORDÆMI til þess að vera virk!