Ég var í steggjun í gær. Steggurinn var hann Maggi í verkfræðinni:

Ég átti að hitta hópinn á Paintball vellinum í Straumsvík, en ég var of seinn þangað svo stefnan var tekin á Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði, Bjössi var að keyra mig. Ég rata nú ekkert þar svo ég fékk leiðbeiningar hjá 118. Hér er mynd sem sýnir leiðina sem við Bjössi fórum (leiðin byrjar þar sem símtalinu við 118 lauk og endar við laugina):

Smá krókur…
Ég er enn og aftur kominn með nýtt útlit, aðallega var ég samt að færa vefinn milli netþjóna, uppfæra Wordpress í nýjustu útgáfu og laga kommentavandamálið (kom alltaf bara eitthvað bull frá ykkur lesendur góðir).
Nú er ég s.s. með Wordpress 2.5.1 og K2 RC6 þemað!

Svona leit sköflungurinn á mér út á laugardagskvöldið síðastliðið… Víði tókst að kasta Kubbkylfu beint í sköflunginn á mér með þeim afleiðingum að ég var með auka hné fram á sunnudag.
Nýjustu komment
RSS