Færslur í desember 2007

Jólin, maður

Já jólin, jólin. Ég er kominn í jólafrí í vinnunni til 27. desember. Æðislegt, ég er búinn að njóta þess að gera ekki neitt. Ekkert stress, ekkert að flýta sér að neinu. Ég fór í Kringluna á fimmtudaginn og keypti nánast allar gjafirnar á einu bretti, kláraði svo restina með einu strauji á vísakortinu í dag… Á eftir að kaupa jólapappír og tilheyrandi en líklegast er auðveldast að bíða með það þar til ég kem austur á Selfoss. Ég fór í ansi skemmtilegt partý til Tuma með öllu verkfræðigenginu í gær, föstudag. Þar voru flestir að fagna próflokum, ég var einfaldlega að fagna. Keypti allt í mojito og fjárfesti meira að segja í kokteilhristara og skammtara og égveitekkihvað. Komst svo að því að Tumi hafði líka keypt allt í mojito, þannig að það var hrikaleg mojito gleði í þessu partýi. Kíktum eftir það á diskóhommann á Nasa, þ.e. Pál Óskar. Mjög góð stemning, en ég var ekki að fíla þetta svo ég dreif mig bara heim.

Við Bjössi, Víðir og Ýmir vorum að spila nýtt spil áðan. Það tók um klukkutíma að stauta okkur gegnum reglurnar og aðra 2,5 að spila spilið. Ef Bjössa-faktornum sleppir hefðu þetta verið tæpir tveir tímar í spilun hugsa ég … Annars heitir spilið Caylus, og er bara þrælskemmtilegt, þegar reglurnar eru komnar á hreint.

Ég segi þá bara gleðileg jól til allra, og hafið það sem allra best um hátíðirnar!

“Hvert er stærsta spendýrið sem gerir sér hreiður?”

Steypireyður: Þegar steypireyðurinn er kominn á steypirinn steypir hann sér steypihreiður úr steypu og steypir því svo.