Færslur í október 2007

Af Airwaves og fleiru

Þá eru 3 kvöld af Airwaves búin og ég verð að segja að þetta er allgjör snilld, skil ekki að maður hafi ekki farið áður. Á miðvikudaginn sá ég Smoosh, Poetrix og The Zuckakis Mondeyano Project. Smoosh eru 3 systur frá Seattle, 15, 13 og 11 ára, sem spila indie popptónlist, og eru bara nokkuð góðar. Poetrix og félagar komu á óvart, voru bara nokkuð skemmtilega. Við ætluðum eiginlega inn á Organ, en það var svo svakaleg röð að við ákváðum að leita skjóls á hip-hop kvöldinu á Gauknum. Við fórum svo á Organ og sáum Zuckakis sem var bara fínt. Svo bara drifum við okkur heim í gufuna…

Á fimmtudaginn fór ég svo á Boys in Band, Lay Low, Grizzlie Bear og The Duke Spirit. Ég hefði viljað sjá fleiri bönd en við lentum í löngum röðum og eyddum fullt af tíma í ekki neitt. Boys in a Band eru frá Færeyjum og voru helvíti góðir, Lay Low stendur alltaf fyrir sínu en Grizzlie Bear voru ekki alveg að gera sig. Duke Spirit voru fín en samt ekkert æðisleg.

Í gærkveldi fór ég í smá afmælisteiti hjá Stebba sem var með mér í rafmagnsverkfræðinni en fór snemma til þess að sjá Benny Crespo’s Gang. Strax á eftir þeim var Pétur Ben og svo fór ég á listasafnið að sjá of Montreal. Benny Crespo’s eru ansi góð, ég er kannski hlutdrægur þar sem ég þekki flesta hljómsveitarmeðlimi, en mér finnst tónlistin allavega góð. Ég stoppaði stutt á Pétri Ben en það sem ég sá var mjög gott bara. Á listasafninu var klikkuð stemning þegar of Montreal stigu á svið, við náðum að koma okkur fremst í hitann og svitann og það var æðislegt. Eftir það hitti ég Tuma og Matta úr rafmagninu og við kíktum á Celtic, þar með var Airwaves upplifun kvöldsins búin. Við enduðum svo kvöldið á sjóðheitri gufu…

Áðan fór ég í Krónuna að versla. Á eftir mér var pervisinn, eldri maður með yfirvaraskegg og hornspangagleraugu. Hann var að kaupa ýmsar matvörur, og svo risastóran bleikan stauk af Durex sleipiefni.

Svo var ég að horfa á myndbandið við lagið To Be With You áðan og rakst á skemmtilegt komment við lagið:

Haha i love this song so much three years back i didnt no what it was called but came across the song in a porn movie great huh but the funny part is i loved it so much i showed my parents the movie so i could find the song

Allir ráðnir í bankana

Rakst á þessa stuttu frétt í viðskiptablaðinu Markaðurinn í dag:

Eftir því sem fjármálalíf og viðskiptagjörningar hafa orðið flóknari hafa bankar og aðrar fjármálastofnanir síðustu ár sóst í auknum mæli eftir hámenntuðu starfsfólki með annan grunn að baki en í viðskiptum og hagfræði. Eðlisfræðingar, stærðfræðingar og verkfræðingar eru heitir. Til marks um það barst Markaðnum til eyrna á dögunum að bankarnir hefðu ráðið alla þá rafmagnsverkfræðinga sem útskrifuðust frá Háskóla Íslands í vor og enginn þeirra því farið í önnur störf utan fjármálageirans. Varð einum heimildarmanna á orði að bankarnir hefðu hreinað upp allt nýja blóðið á markaðnum.

Svo skemmtilega vill til að ég tilheyri þessum hópi sem útskrifaðist úr rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands í vor. Og… ég vinn ekki í fjármálageiranum. Þarf ég að segja meira?

Hambó

Ég var að elda og borða svakalega djúsí hamborgara áðan. Hann var með skinku, osti, piparosti, papriku, tómötum, lauk, káli, steiktum sveppum, eggi, tómatsósu og dijon-sinnepi. Ætli sé hægt að fá hamborgara einhvers staðar í bænum sem býður upp á 11 álegg?