Daily Archive for september 17th, 2007

Samfélag+

Rúv+, Skjáreinn+, Stöð2+… Hvað er næst? Rúv++, Skjáreinn+24, Stöð2+365? Bráðum fara að myndast hópar í samfélaginu sem lifa klukkutíma á eftir öllum hinum. Þetta byrjar sakleysislega, það er sniðugt að geta horft á fréttirnar klukkutíma síðar ef maður kemur seint heim eða horft á uppáhaldsþáttinn sinn á Skjáreinn+ vegna þess að maður tafðist í umferð. Næst ferðu að treysta á þessa nýju leið til að horfa á sjónvarp og dagurinn er allt í einu orðinn klukkutíma lengri.

Þegar tækninni fleygir svo fram og afþreyingarmöguleikum fjölgar verðum við væntanlega komin með enn fleiri stöðvar; Stöð2++, Skjáreinn+24… Allt í einu ertu farinn að fylgjast með fréttum degi á eftir öllum öðrum, í partíum þarftu að hópa þig með þeim sem sitja í sömu súpunni svo umræðan um málefni “líðandi stundar” verði ekki stórundarleg. Fyrr en varir ertu búinn að tapa viku úr lífi þínu, horfir á Rúv+7 og átt erfitt með að skilja af hverju það er alltaf rigning þegar veðurfréttamaðurinn spáir sólskini.

Á endanum hlýtur svo að koma að því; stofnað verður félagið 365+ utanum rekstur fjölmiðlasamsteypu sem birtir ársgamalt efni fyrir ekta íslenska “frestara” (e. procrastinator). Þetta systurfélag 365 verður stærra með hverjum ársgömlum deginum og á endanum verður ákveðið að þurrka út heilt ár úr Íslandssögunni, enda allir hættir að lifa í nútímanum.