Monthly Archive for september, 2007

Samfélag+

Rúv+, Skjáreinn+, Stöð2+… Hvað er næst? Rúv++, Skjáreinn+24, Stöð2+365? Bráðum fara að myndast hópar í samfélaginu sem lifa klukkutíma á eftir öllum hinum. Þetta byrjar sakleysislega, það er sniðugt að geta horft á fréttirnar klukkutíma síðar ef maður kemur seint heim eða horft á uppáhaldsþáttinn sinn á Skjáreinn+ vegna þess að maður tafðist í umferð. Næst ferðu að treysta á þessa nýju leið til að horfa á sjónvarp og dagurinn er allt í einu orðinn klukkutíma lengri.

Þegar tækninni fleygir svo fram og afþreyingarmöguleikum fjölgar verðum við væntanlega komin með enn fleiri stöðvar; Stöð2++, Skjáreinn+24… Allt í einu ertu farinn að fylgjast með fréttum degi á eftir öllum öðrum, í partíum þarftu að hópa þig með þeim sem sitja í sömu súpunni svo umræðan um málefni “líðandi stundar” verði ekki stórundarleg. Fyrr en varir ertu búinn að tapa viku úr lífi þínu, horfir á Rúv+7 og átt erfitt með að skilja af hverju það er alltaf rigning þegar veðurfréttamaðurinn spáir sólskini.

Á endanum hlýtur svo að koma að því; stofnað verður félagið 365+ utanum rekstur fjölmiðlasamsteypu sem birtir ársgamalt efni fyrir ekta íslenska “frestara” (e. procrastinator). Þetta systurfélag 365 verður stærra með hverjum ársgömlum deginum og á endanum verður ákveðið að þurrka út heilt ár úr Íslandssögunni, enda allir hættir að lifa í nútímanum.

Ný íbúð, nýr bíll og ný nettenging!

Rétt í þessu greip um sig mikil geðshræring í Skaftahlíð 10 þegar við komumst loksins í samband við internetið… Það er því við hæfi að henda inn einni bloggfærslu um frekar viðburðaríka viku.

Á mánudaginn hringdi Gaui frændi minn sem er bílasali í mig og sagðist vera með bíla í sigtinu. Ég tékkaði á þeim og leist ágætlega á 2ja ára gamlan Aygo. Ég keypti hann svo síðar um daginn. Á miðvikudaginn flutti ég í Skaftahlíðina og í dag komum við ljósleiðaratengingunni í gagnið… Svo fylgja hérna nokkrar myndir:


Aygo


Skaftó

Atburðir undanfarna viku

Ætli það sé ekki best að ég greini örlítið frá því hvað hefur gerst í lífi mínu undanfarna viku:

Við fundum ágætis íbúð, skoðuðum hana og slógum til. Á miðvikudaginn gáfum við út víxil og á laugardaginn var skrifað undir samninginn. Víxillinn var nota bene til þess að bankinn hefði tryggingu fyrir bankaábyrgðinni sem hann veitti út á leiguna. Ég skil þetta ekki, af hverju er ekki nóg að gefa bara út víxil? Íbúðin er að Skaftahlíð 10 og ég býst við að flytja inn í vikunni.

Á laugardaginn fyrir rúmlega viku hjálpaði pabbi mér að laga bílinn svo lítið sést á honum. Það er ekki komin nein sekt eftir myndatökuna góðu svo ég held bara áfram að krossleggja fingurna…

Um helgina var ég að vinna fyrir Exton. Vorum að setja upp Ísmót 2007 og Norah Jones tónleikana. Ég var svo á tónleikunum sjálfum en var svo þreyttur að ég sofnaði næstum því nokkrum sinnum. Enda hjálpaði ekki að tónlistin var í rólegri kantinum. Hún var líka svolítið í því að djóka, sagðist hafa fengið æðislega pulsu á Bæjarins Bestu, með steiktum lauk, tómatsósu, remúlaði og sinnepi. Eftir næsta lag sem var eitthvert ástarlag sagðist hún næstum hafa verið að syngja til pulsunnar… Hún sagðist líka ætla að fá sér pulsu í morgunmat daginn eftir. Bæjarins Bestu voru greinilega að slá í gegn hjá Noruh!

Svo er ég aftur orðinn dæmakennari í Tölvunarfræði 1a sem ég fæ að sinna meðfram vinnunni. Er með dæmatíma og vertíma í hverri viku fram að jólum og líst bara ágætlega á þetta.