Færslur í ágúst 2007

Erfið vika

Já þetta hefur vægast sagt verið erfið vika. Það gengur ekkert að finna íbúð. Ég, Bjössi og Víðir vorum með eina góða í sigtinu, en það varð ekkert úr því. Við höldum því áfram að leita.

Á þriðjudaginn keyrði ég aftan á bíl á Hringbraut. Það var ekkert alvarlegt, bara blautt malbik og bílarnir á undan hemluðu frekar snögglega. Svo ég sat uppi með brotið framljós og beyglaða vélarhlíf. Ég ýtti nú bara hraustlega á vélarhlífina og hún er sæmileg á eftir.

Í gær var ég að keyra heim eftir langan vinnudag, fer á 80 yfir ljósin á Hringbraut/Njarðargötu, og fæ tvö góð flöss frá helvítis hraðamyndavélinni. Þannig að ég má búast við 10-15.000 króna sekt…

Í dag keypti ég nýtt framljós í Vöku. Þegar heim var komið eftir annan erfiðan vinnudag ætlaði ég sko aldeilis að komast í gegnum fyrstu bílaviðgerðina aleinn! Þá kemur í ljós að helvítisstuðarinn hafði beyglast líka svo óbrotið og heilt ljós komst ekki inn fyrir. Urrr. Og til að toppa það datt grillið af þegar ég opnaði húddið…

Það lítur því út fyrir að ég þurfi nýjan stuðara og nýtt grill líka, ef ég næ ekki að berja þann gamla í fyrra horf.

Mér líður aðeins betur núna, eftir að hafa ausið úr skálum pirringsins…

Nýtt útlit, myndir o.fl.

Þá er loksins komið almennilegt útlit á þetta blessaða “blogg”. Ég notast við viðbót ofan á Wordpress sem heitir K2, og þemað þar ofan á heitir TrueBlue. Það eru skemmtilegir Ajax fídusar í þessu dóti öllu saman, eins og stikan hérna efst, og leitarboxið uppi til hægri. Reyndar virkar það ekki almennilega enn… vona að ég sparki því í gang sem fyrst.

Þá er ég líka búinn að tengja Picasa albúmin mín hérna inn á bloggið, sem gerir það mun heimilislegra…

Svo er ég farinn að reka hálfgerða góðgerðastarfsemi fyrir ferðamenn, ég skráði mig á CouchSurfing.com og býð gistingu handa vel völdu ferðafólki… Búinn að fá hingað eina stúlku frá New Jersey. Hún heitir Danielle og á 11 ketti. Í vikunni kemur skiptinemi sem fær ekki íbúð strax, og svona gengur þetta.

Goggaljóð

Ég fékk Goggaljóð um mig frá Jóni:

Vangasvipur Öfjörð

Í gegnum myrkur
vangasvipur Öfjörð
einsog dagsetning

sem öll tímabelti
styðja

raunverulegt nafn
staðsetning og / eða
heimilisfang er óákveðin

höfuð yfir öxl jafningja
Öfjörð leitar heimilisfangs
sem sennilega byrjar eins
og það endar

staðsetning og / eða
heimilisfang er óákveðin

Upprunaleg heimild og fleiri ljóð hér.

Aflþynnka?

Í dag var frétt á mbl.is: “Iðnaðarráðherra mælir með nýyrðinu aflþynna”. Að mínu mati er þetta “nýyrði” rangnefni. Í fréttinni er sagt að orðið “aflþynna” sé þýðing á enska orðinu “capacitor”. Nú hef ég setið þó nokkra kúrsa um rafmagnsfræði og veit því að það er til fullgilt íslenskt orð fyrir “capacitor”, en það er þéttir, eða rafþéttir. Eftir því sem ég best veit framleiðir umrætt fyrirtæki, Becromal, álþynnur sem notaðar eru í þétta.

Þéttir

Eins og sést á myndinni hérna að ofan er algeng gerð af þétti þannig uppbyggð að tvær málmþynnur eru lagðar saman með óleiðandi efni á milli, sem veldur því að rafsvið myndast milli málmanna. Sennilega hefur orðið einhver misskilningur hjá iðnaðarráðherra og hans fólki, og hann hefur ætlað að koma með nýyrði fyrir þessar blessuðu málmþynnur. Það er hins vegar fullkomlega tilgangslaust að koma með sérstakt orð yfir þær ýmsu málmþynnur sem notaðar eru í þétta, þar sem við getum einfaldlega notað orðin álþynna, koparþynna, o.s.frv.

Mynd fengin hér.

Hátæknikvikmyndahús

Skrítið kvikmyndahús

Rakst á þetta einkaleyfi fyrir ofurraunverulegu kvikmyndahúsi. Það gerir ráð fyrir myndvarpa með 300° fiskaugalinsu, ásamt kvikmyndatjaldi sem nær yfir 300° svið. Þá er vökvastýring á gólfinu undir sætunum (sem eru nota bene með beltum) sem getur látið gólfið hreyfast með atburðarás kvikmyndarinnar sem sýnd er. Hægt er að taka upp ákveðið hreyfimynstur og geyma það á floppy-disk til síðari nota. Þá skal notendaviðmót stjórnkerfisins vera valmyndadrifið, til þess að lágmarka þörf á starfsþjálfun…

Ætli það sé eitthvað svona sem er verið að meina þegar talað er um hátæknisjúkrahús?

Er líf eftir skóla?

Karlar segja nei við nauðgunumJæja, það er liðið ansi langt síðan það kom eitthvað hérna síðast. Myndin hérna til hliðar á ekki að vera svar við spurningunni í titlinum, ef einhver er að spá í því… Fór á tónleika í gærkveldi með Völundi og Jóni Erni, baráttutónleika gegn nauðgunum, á Grand Rokk. Sennilega bjánalegasta tónleikauppsetning sem ég hef séð, sviðið pínulítið, engin aðstaða fyrir flytjendurna sem þurftu að troðast gegnum mannþröngina með hljóðfærin. Jón Örn gafst held ég upp eftir hálftíma en ég og Völundur þraukuðum og tróðum okkur við hliðina á Elínu og Hlíf. Mér fannst Sprengjuhöllin skemmtilegust, Wulfgang var skemmtileg en maður átti svolítið erfitt með að taka augun af söngvaranum, hann kipptist svo mikið til að ég hélt hann væri kannski flogaveikur greyið. Grapevine kallar hann ,,Elvis of Iceland”… Ég hafði aldrei séð Diktu á sviði svo það var gaman, og Pétur Ben var auðvitað ótrúlega góður. Mér fannst sérstaklega flott þegar hann hætti að syngja í mækinn og slökkti á gítarnum, held honum hafi ofboðið lætin í liðinu sem var að spjalla í salnum eins og það væri saumaklúbbur.

Verslunarmannahelgin: Er á báðum áttum. Hálfpartinn langar mig bara að hanga heima, en það væri líka gaman að vera í útilegu. Held að ég sitji rigninguna af mér heima föstudag og laugardag, en kíki kannski í útilegu 1-2 kvöld.

Og já, ég svara kannski spurningunni í titlinum seinna…