Daily Archive for desember 17th, 2006

Eymd og volæði

Í dag líður mér illa. Mér finnst ég innilokaður og heftur, mér finnst eins og frelsi mitt hafi verið skert. Já, það er rétt, netsamband við útlönd er bilað… Þeir sem eru svo heppnir að skipta við almennileg fjarskiptafyrirtæki sem nota bæði FAR-ICE og CANTAT-3 geta sofið rólegir, vitandi að Google, Wikipedia og aðrir erlendir vefir virka hjá þeim. Ég hins vegar þarf að lifa við að skoða einungis íslenska vefi næstu 2-3 vikur ef fréttin er rétt þar sem ég er með ADSL tengingu hjá HÍ. Það datt sem sagt einhverjum snillingi hjá RHÍ að notast einungis við Cantat-3 sæstrenginn til þess að hafa samskipti við umheiminn, sennilega vegna þess að það er svo miklu ódýrara…

Þegar þetta er skrifað eru 2 próf eftir, í Hönnun tölva og Fjarskiptaverkfræði 1. Ég er alls ekki að nenna að læra fyrir þessi próf, sem er því miður ekki nógu gott, því þetta er þau fög sem ég hef minnst lagt vinnu í í haust.

Ég læt í mér heyra síðar, ef ég næ að rífa mig úr þunglyndinu, eða þegar útlandasamband kemst aftur á.

Uppfærsla kl. 20:46
Netsamband við útlönd er komið á! Vei.