Færslur í ágúst 2006

Fyrsti skóladagurinn…

… er að kveldi kominn. Tók þó forskot á sæluna og var allan sunnudaginn að græja rafnem tölvuverið í VR II. Þetta var svolítið maus en tókst að lokum. Heimasvæðin voru svo afrituð í nótt, tók hátt í hálfan sólarhring! MySQL var svo dumpað yfir í dag þannig að það er flest allt komið í nothæft ástand.

Fór annars í tvo tíma í morgun í þriðja árs stofunni (bara næs að vera kominn þangað). Sá fyrri Hönnun Tölva. Eyddum góðum hálftíma í að fá skjávarpann til að virka. Endaði með því að ég þurfti að taka upp skrúfjárnið… Kennarinn virðist ágætur þar, grínaðist með þetta bara. Svo þegar efnið kláraðist djókaði hann meira og lét þetta gott heita. Svo kom Jóhannes í MOSið. Hann virðist ágætis kall, kannski pínu stífur. Ég ætti kannski ekki að vera að segja þetta svona á opinberum vettvangi, en hey! Ég hlýt að vera haldin sjálfseyðingarhvöt…

Svo er það í fréttum að ég er orðinn dæmatímakennari í tölvunarfræði 1a. Kenni sem sagt einn dæmatíma á viku og 2 tölvuverstíma fyrir utan að fara yfir verkefnin. Kominn með verkefnahólfið 69 ef einhver vill senda mér gamaldags póst, hehe.

O jæja, segi þetta gott í bili! Auður kemur heim á miðvikudagskvöld, ég er að telja niður…

Laugavegurinn, Nice og fleira

Nú er orðið langt um liðið síðan ég skrifað hérna síðast. Það hefur slatti gerst síðan, m.a. gekk ég Laugaveginn með 17 Dönum og fleiru góðu fólki, ég fór til Frakklands að heimsækja Auði og svo átti ég líka afmæli 3. ágúst.

Við hófum Laugavegsgönguna föstudaginn 21. júlí. Mættir út í skátaheimili voru ég, Gummi Finnboga, Finnbogi pabbi Gumma, Mathilde og Robert Nordjobbarar, Saga sænska, Danirnir 17, þar með taldri Camillu frænku Auðar og Nadiu foringja þeirra, Ármann sem keyrði rútuna og Sigursveinn bróðir Ármanns sem keyrði yfirfarþega (fengum ekki stærri rútu). Við lögðum snemma af stað í Landmannalaugar og þegar þangað var komið gengum við strax af stað. Það var því miður frekar ömurlegt veður allan daginn svo það var ekkert hægt að stoppa og hvíla sig eða borða. Við vorum því nokkuð snögg upp í Hrafntinnusker þar sem við tjölduðum í sandinum. Rétt áður en við elduðum birti til og hætti að rigna og um leið birti yfir hópnum sem tók gleði sína aftur eftir frekar leiðinlegan dag. Við fórum meðal annars í íshellana góðu sem ég hef aldrei séð áður. Daginn eftir var betra veður og var gangan í Hvanngil mun skemmtilegri en daginn áður. Þessi mynd var tekin í Hvanngili, þar sem við vorum að elda geimfaramat (sojakjöt).

Gummi, Robert, Mathilde, Saga og Sævar

 

Daginn eftir gengum við hratt og örugglega niður í Botna í Emstrum í glampandi sól og notuðum daginn þar í að hvíla og leggja okkur og sólbrenna. Eftir matinn gengum við að Markarfljótsgljúfri sem er 180 metra djúpt þar sem það er dýpst. Síðasta daginn gengum við svo niður í Þórsmörk, reyndar haltraði ég þar sem hnéð á mér bólgnaði svona svakalega upp svo ég átti erfitt með að fara niður brekkur. En við komumst á leiðarenda þar sem Einar Elí og Ármann sóttu okkur.

Daginn eftir flaug ég svo til London með Palla, kærasta Ástríðar. Þar gistum við og flugum svo snemma til Nice í Frakklandi, við strönd Miðjarðarhafsins. Þar eyddum við tímanum í að slappa af og liggja í sólinni, hitinn var yfirleitt ekki minni en 30 gráður í skugga. Einn daginn fórum við í vatnsleikjagarð rétt hjá Nice þar sem Auði tókst að togna í brjóstkassanum. Þannig var að hún fór í rennibraut sem skaut manni 4-5 metra áður en maður lenti í vatni og áttu allir að vera með hjálm og halda höndunum að sér á ákveðinn hátt. Auður sleppti höndunum með fyrrgreindum afleiðingum… Einn daginn á ströndinni stóðum við úti í sjónum að kæla okkur þegar yfir okkur reið frekar stór alda sem kaffærði okkur. Það endaði með því að ég týndi gleraugunum mínum. Ég sá fram á að sjá ekki neitt það sem eftir væri ferðarinnar, en við kíktum í gleraugnabúð þar sem góður maður mældi mig og gaf mér linsur sem ég gæti notað út ferðina.

Við Auður í Nice

Einn daginn fórum við svo í gönguferð um Nice og skoðuðum m.a. höfnina með snekkjum ríka og fræga fólksins. Það var hellingur af snekkjum þar og voru þær nær allar skráðar á Cayman eyjum, sem er víst ódýrara en að skrá þær í heimalandi sínu.

Höfnin í Nice

Á endanum þurfti svo að fara heim og það var farið sömu leið, gegnum London, nema að nú höfðum við bara um klukkutíma frá því við lentum í Stansted þar til fljúga átti til Íslands. Þetta var í stuttu máli voðalegt stress og við náðum í innritun um 10 mínútum áður en lokað var, síðastir farþega. Komumst svo í vélina á góðum tíma einungis til þess að komast að því að það átti að vera u.þ.b. 40 mínútna seinkun…

Gleraugun fæ ég bætt gegnum heimilistryggingu en þar sem það tekur 2-3 vikur að panta þau þarf ég að vera með linsur þangað til þau koma. Ég á tíma í linsumátun á þriðjudaginn en svo óheppilega vildi til að á föstudagskvöldið missti ég úr mér eina linsuna og tókst ekki að koma henni í mig aftur, enda aldrei verið með linsur og kann ekkert á þetta… Þannig að alla verslunarmannahelgina hef ég séð frekar asnalega, með linsu á öðru auga… Það er erfitt að lýsa því en gæti verið einhvern veginn svona:

Tilraun til að lýsa því hvernig ég sé þessa dagana…