Jæja þá er maður kominn með nýju tölvuna í hendurnar. Það er ekkert annað en Thinkpad T60 með dual core örgjörva og fleiri standpínu fídusum fyrir allan peninginn. Þessi verður án efa mikið notuð eins og gamla fartölvan sem var komin með glansáferð á lyklaborðið vegna notkunar…
Roger Waters og co. voru helvíti góðir, sándið var mjög flott og sjóvið töff líka. Lenti í smá vandræðum á leiðinni á tónleikana þar sem mér datt í hug að fara Vesturlandsveginn ásamt hinum 15.000 sem voru á tónleikunum. Þannig að maður var í bílaröð í a.m.k. klukkutíma, endaði með því að ég labbaði bara frá Vesturlandsvegi við brúna yfir í Grafarvog. Kom á endanum lafmóður og sveittur á tónleikana þar sem mín beið passi. Eftir tónleika vann ég svo fyrir Exton við niðurtekt. Það var helvíti mögnuð keyrsla og á örfáum tímum var mestallt draslið komið niður. Klukkan 3 um nóttina fattaði ég að ég hafði gleymt að spyrja Sigga Vír hvort ég fengi far í Vesturbæinn, og hann var að sjálfsögðu farinn heim, og enginn annar á leiðinni í þá áttina í bráð. Sem betur fer var Magnús Árni að vinna þarna líka, og hann var með far. Á endanum komst ég á Víðimelinn um fimmleytið. Vaknaði svo klukkan 7, Auður keyrði á Selfoss og ég mætti í vinnu klukkan 8…
Núna er maður bara staddur á Víðimelnum að slappa af. Auður er að vinna með Norddjobburum, strák frá Svíþjóð og stelpu frá Noregi. Þau voru að fara í Nordjobb ferð á sunnudeginum svo hún bara bauð þeim að gista hjá okkur. Þannig að í gærkveldi vorum við fjögur og Bylgja bara að sötra öl heima og kíktum svo niður í bæ með útlendingana að kynna íslenskt næturlíf fyrir þeim.
Í dag fórum við niður í bæ á 17. júní hátíðarhöldin. Ég hef nú aldrei verið í Reykjavík á þjóðhátíðardaginn, og þetta var nú bara ágætt, horfðum aðallega á slatta af tónlistaratriðum. Einhvern veginn hefur 17. júní alltaf verið einhver svona letidagur, maður var alltaf í skrúðgöngu á þessum degi fyrir nokkrum árum, en ekki lengur. En það var ágætt að sjá hvernig þetta er í Reykjavík, að mörgu leyti svipuð dagskrá og á Selfossi, en bara miklu meira að gera. Svo ég eiginlega upplifði þennan þjóðhátíðardag allt öðruvísi en ég hef gert áður.
Nýjustu komment
RSS