Jæja, það er alltaf jafn magnað hvað maður er virkur í öllu öðru en að læra þegar próf er á næsta leyti, sérstaklega síðasta prófið… En ég tók allavega skriftuna sem ég gerði síðasta vor og endurbætti hana aðeins, þar sem hin útgáfan gat ekki lengur parsað síðuna hans Pálma. Afraksturinn má svo sjá hér að neðan:
Monthly Archive for maí, 2006
Jæja, þá er ég kominn með nucleus, sem virðist vera ágætis bloggkerfi. Er að vinna í að setja alla gömlu póstana inn í kerfið núna. Annars er prófatörnin alveg að verða búin, bara Grupp prófið eftir á mánudaginn. Kominn með úr Rafsegulfræðinni líka, það gekk bara ágætlega líka. Verst að ég er enn að vinna í þessum vef, vonast til að klára sem mest af honum í dag, fundur á morgun. Svo er stefnt á að setja hann í loftið á miðvikudag eftir viku.
Öppdeit:
Búinn að setja öll bloggin inn, vissi alltaf að það myndi borga sig að vera svona óduglegur að blogga… Næst eru það kommentin!
Öppdeit 2:
er það bara ég eða virkar síðan ekki í explorer?
Öppdeit 3:
Eh, ok það var ég.
… ég kem mér ekki í lærdómsgírinn þessa dagana. Byrjaði vel í síðustu viku, tók svo fyrsta prófið 3. maí. Það gekk bara vel, einkunnin er komin í hús. Svo var próf 5. maí en það var n.k. áfangapróf í því námskeiði þ.a. efnið var ekki mjög mikið. Enda fór ég út þegar helmingur af próftíma var liðinn. En nú er komið að martröðinni, Rafsegulfræði á mánudaginn 8. maí. Ég hef ekki hugmynd um hvernig það fer, verð bara að vona það besta.
Annars er ég líka að vinna að vef með honum ee.is, við fórum á fund með kúnnanum í morgun, þá hafði ég sofið í ca. 2 tíma um nóttina eftir að hafa púllað ollnæter eins og maður segir í bransanum. En fundurinn fór betur en ég þorði að vona og kúnninn ánægður.
Nú sitjum við Auður hvort við sitt skrifborðið og hlustum á Klassísk Meistaraverk… Tumalína sturlast síðan reglulega þegar prentarinn prentar.
Jæja, ekkert meira að frétta í bili held ég, það er kannski best að maður fari að reikna gömul próf svo maður eigi einhvern séns í Segulinn.
Nýjustu komment
RSS