Monthly Archive for janúar, 2006

Öðrum bloggurum…

… til fróðleiks, já og til þess að sýna þeim hvað þeir hafa það gott, ætlaði ég að segja aðeins frá því hvernig þessi texti varð til. Ég byrja sem sagt á að fara í skelina í linux, ssh-tengja mig við Herðubreið Reiknistofnunar, opna þar textaskrá nefnda eftir janúarmánuði ársins 2006 með textaritlinum pico og byrja að skrifa. Það hljómar kannski eins og ég sé að gera mér erfitt fyrir, en satt að segja er þetta ekkert svo leiðinlegt. Það er ólíkt skemmtilegra að horfa á svartan skjá með hvítum stöfum í ritvélaletri með stórum, hvítum cursor (bendli?) heldur en að, tja, logga sig inn á eitthvað sérsniðið bloggkerfi þar sem hugsað er fyrir mann. Kannski er ég sérvitur. Ég verð nú reyndar að viðurkenna að stundum verð ég þreyttur á þessu fyrirkomulagi og langar í svona bloggkerfi, en þá minni ég mig á að það tæki alltof langan tíma að setja það upp. Kannski maður geri það þegar maður á einhvern frítíma.

Annars er það að frétta að ættleiðing Tumalínu er gengin í gegn og er hún nú flutt til okkar. Það hefur ýmislegt gengið á síðan, hún vekur okkur iðulega um miðja nótt með því að krafsa í skáphurðir eða velta hlutum um koll hér og þar í íbúðinni, en það er nú eitthvað að minnka, sérstaklega eftir að við fórum að hafa skáphurðir opnar á nóttunni. Þá getur hún skoðað sig um að vild í skápunum. Um daginn lokaði hún sig ofan í ferðatösku og virtist njóta vel að liggja þar í myrkrinu fram eftir degi, eða þar til við fórum að undrast um hana.

Í skólanum gengur allt sinn vanagang. Þessa önnina er ég í Rafeindatækni 1, Tölvutækni, Greiningu og uppbyggingu rása, Líkindaaðferðum og Rafsegulfræði. Þetta er allt áhugavert og skemmtilegt á sinn hátt, þó mismikið. Heimadæmi og verkefni eru alltaf stór partur af þessu námi og er yfirleitt einn dæmaskammtur í viku pr. fag + nokkur verkefni og/eða verklegar æfingar pr. fag. Þannig að það er alltaf nóg að gera…

Á föstudaginn fórum við í kveðjupartí til V&K, þau eru að flytja til Nýja-Sjálands á morgun. Gaman að því og ég vona að við getum heimsótt þau einu sinni á meðan þau eru þarna úti, en það verður a.m.k. næstu tvö árin skilst mér. Annars þyrfti ég að hætta núna þar sem við Auður erum að fara að kíkja í eina lokaheimsókn til þeirra að sækja smádót og kveðja í þriðja skiptið.

Jæja, nýtt ár gengið í garð

Ákvað að athuga hvort ég hefði valið rétt:

You scored as Engineering. You should be an Engineering major!

Engineering

100%

Mathematics

92%

Philosophy

75%

Art

67%

English

67%

Theater

58%

Psychology

58%

Dance

42%

Linguistics

42%

Anthropology

33%

Journalism

25%

Sociology

25%

Chemistry

25%

Biology

25%

What is your Perfect Major? (PLEASE RATE ME!!<3)
created with QuizFarm.com