í allan dag að gera skýrslu fyrir Rafeindatækni fastra efna. Það á sem sagt að skila þeim öllum á morgun til þess að fá próftökurétt. Við skulum bara orða það svo að það eru margfalt meiri líkur á að maður nái kúrsinum ef maður fær að taka prófið… Svo var ég sem sagt búinn að berjast við það heillengi að fá rétt gildi út úr mælingunum sem ég gerði einhvern tímann í október. Að gera skýrslu svona löngu eftir að tilraunin var framkvæmd minnir á leynilögreglumynd, og maður sjálfur er spæjarinn. Það eru ýmsar athugasemdir, formúlur og vísanir í jöfnur í bókinni hér og þar á pappírum sem geyma líka mæligildin og þessu þarf maður öllu að púsla saman og reyna að fatta hvernig í ósköpunum maður átti eiginlega að gera þetta…
Læt fljóta hérna með fallegt graf. Þetta er sem sagt skeytarýmd í öðru veldi í öfugu hlutfalli við bakspennu fyrir pn-díóðu. Af þessu grafi getur maður t.d. lesið V0, snertispennu díóðunnar, en það er punkturinn sem ég hef merkt inn á grafið.

Nýjustu komment
RSS