Monthly Archive for desember, 2005

Jæja, þá er prófatörnin að verða búin

Síðasta prófið á morgun, Tölrænar rásir. Þar sem ég hef verið beðinn um að auka hlut aulabrandara á þessari síðu kemur hérna einn:

There are 10 kinds of people in this world. Those who understand binary and those who don’t.


Þar sem ég er að fara í próf í Tölrænum Rásum á morgun er við hæfi að sýna hérna mynd af próftökuréttinum, eða AD breytunni. Það má segja að það hafi farið nokkrir klukkutímar í þessa aumu afsökun fyrir rafrás. Þannig var að við byggðum rásina á stærra brettið á myndinni eftir að hafa prófað örlítið á brauðbretti. Eftir þrotlausar prófanir sáum við að þetta gengi nú ekki og ákváðum að byggja helming rásarinnar á minna bretti og fullvissa okkur um að sá hluti væri í 100% lagi. Auðvitað gekk það ekkert heldur. Á endanum var nóg að hækka spennuna á draslinu og þá allt í einu fór allt að smella saman. Gaman að þessu…

En nóg um prófin. Það er að segja ef mér dytti eitthvað annað en prófatengt í hug. Góða nótt.

Ég er búinn að vera

í allan dag að gera skýrslu fyrir Rafeindatækni fastra efna. Það á sem sagt að skila þeim öllum á morgun til þess að fá próftökurétt. Við skulum bara orða það svo að það eru margfalt meiri líkur á að maður nái kúrsinum ef maður fær að taka prófið… Svo var ég sem sagt búinn að berjast við það heillengi að fá rétt gildi út úr mælingunum sem ég gerði einhvern tímann í október. Að gera skýrslu svona löngu eftir að tilraunin var framkvæmd minnir á leynilögreglumynd, og maður sjálfur er spæjarinn. Það eru ýmsar athugasemdir, formúlur og vísanir í jöfnur í bókinni hér og þar á pappírum sem geyma líka mæligildin og þessu þarf maður öllu að púsla saman og reyna að fatta hvernig í ósköpunum maður átti eiginlega að gera þetta…

Læt fljóta hérna með fallegt graf. Þetta er sem sagt skeytarýmd í öðru veldi í öfugu hlutfalli við bakspennu fyrir pn-díóðu. Af þessu grafi getur maður t.d. lesið V0, snertispennu díóðunnar, en það er punkturinn sem ég hef merkt inn á grafið.

Skeytarýmd í öðru veldi í öfugu hlutfalli við bakspennu fyrir pn-díóðu

Þá kemur hérna samantekt

á aulabröndurum sem sagðir hafa verið í sýningunni Blóðberg:

  • Hvað er rautt og ósýnilegt?
    —Enginn tómatur!
  • Af hverju var Gandhi alltaf í hvítu laki?
    —Svo hann gengi ekki um á typpinu!
  • Af hverju er Keila í Mjóddinni?
    —Út af öllum Fellunum!
  • Hvað er líkt með páfanum og jólatré?
    —Kúlurnar hanga bara til skrauts!
  • Af hverju dóu allir mammútarnir út?
    —Það voru engir pabbútar eftir!

Sem sagt alveg frábærir brandarar þarna á ferð sem hann Jón Lögga segir í sýningunni. Og hefur sagt nýjan í næstum hverri sýningu… Verst að ég man ekki alveg alla. Ég bíð samt spenntur eftir lokasýningunni á föstudaginn, því (a) það verður lokasýning og örugglega eitthvað sprell sem verður í gangi og (b) ég er laus við að vinna henni, sem aftur á móti leiðir til þess að þá alvaran virkilega við. Prófin byrja 10. des.