að kommentadraslið sé allt farið til fjandans. Ármann er eitthvað að klikka með reddast.is. Það svo sem ætti ekki að breyta miklu, ekki eins og kommentin séu að hrúgast inn hérna.
Annars er það að frétta að ég er orðinn ljósamaður í uppsetningu Stúdentaleikhússins á Blóðberg. Ljósamaður er sem sagt fínt orð yfir gaurinn á spottljósinu. Við Gummi létum Ólöfu H plata okkur í þetta. Þetta er nú svo sem ágætt, verst að maður þarf að sitja í afkáralegum stellingum upp undir rjáfri alla sýninguna. Mér finnst sérstaklega skemmtileg aðvörunin á síðu Stúdentaleikhússins: [Leikritið inniheldur gróft mál og atriði í sýningunni gætu valdið óhug hjá börnum]. Þetta er nú hálfgert understatement, fullorðnir karlmenn hafa farið grátandi út! En annars er þetta ágætis sýning, frekar dramatísk, en með gamansömu ívafi…
Við fórum svo í dag á tónleika Mótettukórs Hallgrímskirkju á allra heilagra messu. Þar voru flutt Requiem eftir Mozart og Fauré. Mjög falleg verk, bæði tvö. Hitti þar Magga, en hann var víst í þessum kór fyrir ekki svo löngu síðan. Svo sá ég biskupinn tala við skrítinn kall í svörtum kjól með stóran kross í keðju um hálsinn. Hann var með hökutopp og einhvers konar túrban minnir mig. Hvenær ætli íslenskir prestar geri uppreisn og klæði sig svona? Með blíng-blíng krossa í gullkeðjum um hálsinn og túrban á hausnum?
Nýjustu komment
RSS