að blóka áður en júní er liðinn. Og það í wordpad, sælla minninga… Nú er ég aftur sestur með bolla við hönd en þó ekki með kaffi. Nýlega voru kynnt fyrir mér afar áhugaverðir vatnslosandi eiginleikar sem grænt te hefur með sér að bera. Í dag ákvað ég að prófa slíkt te. Á öðrum bolla dagsins fór ég að finna fyrir vægum sting hægra megin í kviðarholi. Ég hélt áfram að drekka teið og verkurinn hvarf. Enn sem komið er hef ég ekki merkt nein önnur áhrif sem rekja mætti til tevatnsins.
En að öðrum málum og um margt mikilvægari. Hér fyrir nokkru kynnti ég hugmynd sem vakti greinilega athygli nokkurra (einu?) lesenda minna: Sívalur teningur. Þessari hugmynd henti ég fram án nokkurra frekari útskýringa og eðlilega vöknuðu nokkrar spurningar hjá þessum lesendum, enda hugsandi menn. Þeir efuðust um þessa hugmynd, töldu hana stolna eða í besta falli hræðilega ófrumlega. Þegar ég útskýrði málið nánar fyrir herra B sá hann strax að sér og dró til baka fyrri staðhæfingar.
Til þess að koma í veg fyrir frekari misskilning birti ég hér með mynd af teningnum. Hún er mikið einfölduð, ég hafði hugsað mér að láta hvern flöt hliða ,,sívalningsins” vera 1/8 eða jafnvel 1/16 úr pí:
Nýjustu komment
RSS