Daily Archive for maí 29th, 2005

Enn er ég sestur

með kaffibolla í hönd. Að þessu sinni er tilefnið hvorki að horfa á kríuna né Víkurprjón, enda sunnudagur í dag og svo virðist sem krían hafi tekið sér frí frá því að herma eftir hegðun fellibyls.

Nei, tilefnið er fréttir af áframhaldandi starfi mínu við verkefni sumarsins, ,,Bestun á ferlinu Brjóta saman sænguver einn síns liðs í þrívíðu rúmi.”
Nú hef ég til að mynda lokið fyrstu prófunum og tímamælingum. Enn sem komið er millitíminn allt of langur, eða sjö mínútur (Um það bil sá tími sem það tekur að brjóta saman fjögur sængurver og slatta af koddaverum einn síns liðs). Helst vildi ég ná þessu niður í tvö pí eða 6,28 mínútur því það er einfaldlega afskaplega falleg tala (á sama hátt og hið fullkomna borgríki hefur 5.000 íbúa…).

Nú er kaffið farið að kólna, og kveð ég því að sinni. Næst mun ég að öllum líkindum fjalla um nýja uppgötvun mína: sívalningslaga teningur.