Monthly Archive for maí, 2005

Enn er ég sestur

með kaffibolla í hönd. Að þessu sinni er tilefnið hvorki að horfa á kríuna né Víkurprjón, enda sunnudagur í dag og svo virðist sem krían hafi tekið sér frí frá því að herma eftir hegðun fellibyls.

Nei, tilefnið er fréttir af áframhaldandi starfi mínu við verkefni sumarsins, ,,Bestun á ferlinu Brjóta saman sænguver einn síns liðs í þrívíðu rúmi.”
Nú hef ég til að mynda lokið fyrstu prófunum og tímamælingum. Enn sem komið er millitíminn allt of langur, eða sjö mínútur (Um það bil sá tími sem það tekur að brjóta saman fjögur sængurver og slatta af koddaverum einn síns liðs). Helst vildi ég ná þessu niður í tvö pí eða 6,28 mínútur því það er einfaldlega afskaplega falleg tala (á sama hátt og hið fullkomna borgríki hefur 5.000 íbúa…).

Nú er kaffið farið að kólna, og kveð ég því að sinni. Næst mun ég að öllum líkindum fjalla um nýja uppgötvun mína: sívalningslaga teningur.

Það er að koma sumar

Fyrir mér liggja stór verkefni yfir sumartímann og hellti ég mér því kaffi í bolla og settist við gluggann. Út um gluggann sé ég strandlengjuna í Vík. Reynisdrangar, Víkurskáli, Víkurprjón… Og krían. En aftur að verkefnum sumarsins. Ég sat íhugull við gluggann og horfði á kríuna. ,,Bestun á ferlinu Brjóta saman sænguver einn síns liðs í þrívíðu rúmi.” Krefjandi verkefni. Ég reikna með að gera margar verklegar tilraunir og athuganir á þessu vinnuferli og skila niðurstöðum í lok sumars.

Kínverjarnir í næsta húsi

eru algjörir snillingar. Þegar þeir taka sér verk fyrir hendur er það yfirleitt ekkert hálfkák. Fyrir svona hálfum mánuði byrjuðu þeir að mála húsið og endurklæða þakskeggið. Það fyndna er að þeir taka bara eina vinnupallabreidd á húsinu í gegn í einu… Þetta er eins og að horfa á fyrir-eftir ljósmynd! Það eru t.d. tveir svartir ljósastaurar og svört handrið fyrir framan húsið. Sumir myndu freistast til að lakka þau samtímis, en nei. Þeir málu bara hvorn staurinn og hvort handriðið fyrir sig þegar vinnupallurinn kom að þeim. Þetta er kannski ekkert merkilegt, en mér finnst allavega alltaf gaman að fylgjast með Kínverjunum í næsta húsi.

Já, ég er búinn í prófum

Mjög skrítin tilfinning að þurfa ekki að gera neitt sérstakt í bili. Fór í gönguferð meðfram Ægisíðunni í gærkveldi og veðrið var alveg frábært, blankalogn. Í dag er ég búinn að nota tímann í að gera sem minnst, fara í gegnum skóladót og ganga frá því, skrifa þetta forrit hér að ofan sem tilkynnir mér um einkunnaskil o.s.frv… Spurning um að láta það senda mér SMS þar sem SMS-draslið í Uglunni virkar ekki djakksjitt.